Connections prices
Only in Icelandic at the moment.
Valid from 01.05.2020
Rafmagn - heimtaugar
Almennt verð heimtauga gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðin gilda ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimtaugina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitafélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.
Stærð rafmagnsheimtaugar ákvarðast af umsækjanda að teknu tilliti til fjölda íbúða í íbúðarhúsi og fyrirliggjandi notkun annars húsnæðis. Málstraumur heimtaugar miðast við stærð aðalvara húsveitu. Fari heimtaugastrengur lengra en 20 metra inn fyrir lóðarmörk greiðir umsækjandi aukalega fyrir allan kostnað sem fylgir þeirri lengingu. Virðisaukaskattur reiknast 24% á öll heimtaugagjöld rafmagns.
Sérstök ákvæði fyrir heimtaug sem eingöngu er ætluð rafbílahleðslu við fjölbýlishús.
Húsfélag getur sótt um viðbótarheimtaug inn á lóð eða inn fyrir vegg í bílgeymslu ef núverandi heimtaug ber að mati Veitna ekki fyrirséða rafbílahleðslu. Ekki verður innheimtur viðbótarkostnaður (utan lóðar) við lögn heimtaugarinnar að uppfylltu framansögðu og samþykki/samráði við Veitur um afhendingarstað sem hentar miðað við aðstæður og gildir þá neðangreind tafla. Ef hentar að stækka heimtaug í sama tilgangi greiðist mismunur á heimtaugagjöldum viðkomandi stærða.
Rafmagn - heimtaug
Tegund | Málstraumur | Heimtaugagjald | Með 24% vsk. |
---|---|---|---|
H1R | 16 A 1-fasa | 152.967 | 189.679 |
H1R | 50 A | 178.873 | 221.803 |
H1R | 63 A | 225.379 | 279.470 |
H1R | 100 A | 357.747 | 443.606 |
H1R | 200 A | 715.492 | 887.210 |
H1R | 315 A | 1.126.899 | 1.397.355 |
H1R | 400 A | 1.430.983 | 1.774.419 |
H1R | 630 A | 2.253.799 | 2.794.711 |
H1R | 710 A | 2.539.995 | 3.149.594 |
Skýringar:
- Fyrir stærri rafmagnsheimtaug en 710 A er heimtaugagjald grundvallað á kostnaðarútreikningi í hverju tilviki.
- Dreifikerfi Veitna gerir ráð fyrir 63 A heimtaug að hámarki í sérbýli. Ef þörf er á stærri heimtaug í sérbýli skal liggja fyrir afláætlun og heimtaugagjald grundvallað á kostnaðarútreikningi í hverju tilfelli.
Rafmagn - bráðabirgðaheimtaugar
Taxti | Málmstraumur | Stofngjald | Með 24% vsk. |
---|---|---|---|
H2R | 50 A | 55.512 | 68.835 |
H2R | 63 A | 59.213 | 73.424 |
H2R | 100 A | 67.849 | 84.133 |
H2R | 200 A | 129.529 | 160.616 |
Skýringar:
- Þessi verð gilda þegar heimtaugastrengur af fullnægjandi stærð er kominn inn fyrir lóðarmörk. Í öðrum tilvikum og fyrir hærri málstraum greiðist allur raunkostnaður við bráðabirgðaheimtaugina.
Ef vinnuskúr hefur verið tengdur við heimtaugarenda verður hann aftengdur um leið og heimlagnir eru lagðar inn í hús. Óski umsækjandi eftir frestun á þeirri aftengingu greiðir hann aukalega fyrir tengingu heimtaugar og frágang kr. 43.050 án vsk. Hámarkstími bráðabirgðatengingar er tvö ár. Bráðabirgðaheimtaug er eingöngu afhent fyrir utan hús í viðeigandi búnað svo sem vinnuskúr og sem næst dreifikerfi á lóðarmörkum.
Rafmagn - heimtaugar fyrir frístundahús
Taxti | Málstraumur | Heimtaugagjald | Með 24% vsk |
---|---|---|---|
H3R | 50 A | 492.872 | 611.161 |
Skýringar:
- Umsækjandi leggur til ídráttarrör að lóðarmörkum. Fyrir hvern metra umfram 150 m af heildarlengd greiðir umsækjandi 2% af heimtaugargjaldi.
Rafmagn - tengigjald fyrir skammtímanotkun
Taxti | Tengigjald | Með 24% vsk. |
---|---|---|
H4R | 16.037 | 19.886 |
Daggjald fyrir viðburða-/mælaskáp
Stærð | Daggjald | Með 24% vsk. |
---|---|---|
1x16A | 2.000 | 2.480 |
3x32A | 4.000 | 4.960 |
3x50A | 6.000 | 7.440 |
Skýringar:
-
Greitt er tengigjald bæði fyrir tengingu og aftengingu. Álag vegna vinnu starfsmanna Veitna utan dagvinnutíma er 55%. Ávallt er greitt fyrir notkun samkvæmt orkumælingu.Ef Veitur setja upp mælaskáp og búnað fyrir tengingu þá greiðist daggjald til viðbótar.
Ef umsækjandi útvegar viðurkenndan mælaskáp er ekki greitt daggjald.
Kröfur til búnaðar og frágangs mælaskáps eru nánar skilgreindar hér.Tenging er í öllum tilvikum afhent við tengiskáp Veitna og er umsækjandi ábyrgur fyrir lögnum og lagnaleiðum frá móttökustað, svo sem yfirkeyrsluvörnum og öðrum vörnum lagna .
Fyrir umsóknir skammtímatenginga 100 A eða stærri skal umsækjandi útvega viðurkenndan mælaskáp með sér hólfi fyrir orkumæli. Tengigjald greiðist samkvæmt verðskrá Veitna fyrir bráðabirgðaheimtaugar.
Rafmagn - önnur tengiþjónusta
Umbeðin tengiþjónusta rafmagnseftirlitsmanns til rafverktaka utan dagvinnutíma á tímabilinu kl. 16:00 til 00:00 virka daga er kr. 29.976 (kr. 37.170 m/vsk) og eftir miðnætti og um helgar kr. 39.969 (kr. 49.562 m/vsk). Framangreind gjöld miðast við að hámarki þriggja klukkutíma útkall. Þurfi jafnframt þjónustu fleiri starfsmanna Veitna utan dagvinnutíma greiðist sá kostnaður til viðbótar.
Rafmagn - merki frá mæli til notanda
Beiðni notanda um merki frá mæli til nota við eigið stjórn- eða upplýsingakerfi.
Taxti | Skýring | Verð kr. | Með 24% vsk. |
---|---|---|---|
H6R | Tengigjald fyrir aðgang að púlsum frá mæli, uppsett tengidós | 16.204 | 20.093 |
H7R | Ótímabær mælaskipti, settur mælir sem hefur möguleika á púlsútgangi | 10.357 | 12.843 |
Skýringar:
- Tengigjald er greitt fyrir aðgengi að merki frá mæli. Veitur setja upp tengidós sem er aðgengileg fyrir notanda að tengja við sinn búnað.
- Þurfi að skipta um mæli þar sem mælir er ekki hæfur til að gefa frá sér merki þarf notandi að greiða fyrir mælaskipti og dýrari mæli til viðbótar við tengigjald.
- Við mekaníska mæla þarf púlsmagnara sem notandi greiðir leigu af sbr. mælaleiga M9.
- Veitur taka enga ábyrgð á púlsútgangi eða notkun hans og vegna tækniþróunar mæla er ekki mögulegt að ábyrgjast að næsta mælitæki verði með sambærilegum útgangi.
Heitt vatn - heimlagnir
Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðin gilda ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.
Heimæðagjöld í þéttbýli
Neðangreind verð gilda þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn að höfðu samráði við Veitur. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota.
Taxti | Málstærð m.v. stál | Málstærð m.v. PEX | Kr. án vsk. kr. | Kr. með 11% vsk. | Kr. með 24% vsk. |
---|---|---|---|---|---|
H1H | 20 mm | 25 mm | 335.417 | 372.313 | 415.917 |
H1H | 25 mm | 32 mm | 524.087 | 581.737 | 649.868 |
H1H | 32 mm | 858.665 | 953.118 | 1.064.745 | |
H1H | 40 mm | 1.341.666 | 1.489.249 | 1.663.666 | |
H1H | 50 mm | 2.096.351 | 2.326.950 | 2.599.475 |
Skýringar:
- Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðst 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.
Heitt vatn - bráðabirgðatengingar
Taxti | Málstærð m.v. stál | Málstærð m.v. PEX | Kr. án vsk. kr. | Kr. með 11% vsk. | Kr. með 24% vsk. |
---|---|---|---|---|---|
H2H | 20 mm | 25 mm | 100.626 | 111.695 | 124.776 |
Skýringar:
- Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað.
Heitt vatn - heimæðagjöld í dreifbýli (lögbýli og heilsárshús)
Neðangreind verð gilda þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota.
Taxti | Málstærð m.v. stál | Málstærð m.v. PEX | Kr. án vsk. kr. | Kr. með 11% vsk. | Kr. með 24% vsk. |
---|---|---|---|---|---|
H3H | 20 mm | 25 mm | 436.042 | 484.007 | 540.692 |
H3H | 25 mm | 32 mm | 681.314 | 756.259 | 844.829 |
H3H | 32 mm | 1.116.265 | 1.239.054 | 1.384.169 |
Skýringar:
- Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðst 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 32 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.
Heitt vatn - heimæðagjöld fyrir frístundahús (í samræmi við byggingarleyfi)
Neðangreind verð gilda í frístundahúsabyggðum þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 100 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota.
Taxti | Málstærð, skýring | Kr. án vsk | Með 11% vsk | Með 24% vsk. |
---|---|---|---|---|
H4H | 20 mm PEX heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð | 632.132 | 701.667 | 783.844 |
H5H | 20 mm PEX heimæð lögð samtímis og í sama skurði og kaldavatnsheimæð Veitna | 445.072 | 494.030 | 551.889 |
Skýringar:
- Heitavatnsheimæðar fyrir frístundahús eru lagðar með 20 mm PEX. Ósk um stærri heimæð fellur undir mat Veitna á styrk dreifikerfis og verði ósk samþykkt greiðir umsækjandi allan viðbótarkostnað sem fylgir stærri heimæð og þ.m.t. styrkingu á aðveitu.
Heitt vatn - merki frá mæli til notanda
Beiðni notanda um merki frá mæli til nota við eigið stjórn- eða upplýsingakerfi.
Taxti | Skýring | Verð kr. | Með 11% vsk. | Með 24% vsk. |
---|---|---|---|---|
H6H | Tengigjald fyrir aðgang að púlsum frá mæli, uppsett tengidós | 16.204 | 17.986 | 20.093 |
H7H | Ótímabær mælaskipti, 15-20 mm | 10.357 | 11.496 | 12.843 |
H8H | Ótímabær mælaskipti, 25-50 mm | 25.892 | 28.740 | 32.105 |
H9H | Ótímabær mælaskipti, 65 mm og stærri | 31.070 | 34.487 | 38.527 |
Skýringar:
- Tengigjald er greitt fyrir aðgengi að merki frá mæli. Veitur setja upp tengidós sem er aðgengileg fyrir notanda að tengja við sinn búnað.
- Þurfi að skipta um mæli þar sem mælir er ekki hæfur til að gefa frá sér merki þarf notandi að greiða fyrir mælaskipti og dýrari mæli til viðbótar við tengigjald.
- Veitur taka enga ábyrgð á púlsútgangi eða notkun hans og vegna tækniþróunar mæla er ekki mögulegt að ábyrgjast að næsta mælitæki verði með sambærilegum útgangi.
Kalt vatn - heimæðar
Almennt verð heimæða gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðin gilda ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimæðina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitafélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.
Kalt vatn - heimæðagjöld
Neðangreind verð miðast við að umsækjandi hafi lagt ídráttarrör á frostfríu dýpi frá tengistað Veitna við lóðarmörk að inntaksstað í húsi sem Veitur hafa samþykkt. Stærð heimæðar tekur mið af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar fyrir íbúðarhúsnæði tekur mið af fjölda íbúða (töppunarstaða). Heimæðargjöld bera ekki virðisaukaskatt og verðið er uppfært á 3ja mánaða fresti miðað við byggingarvísitölu.
Taxti | Nafnmál Tommumál | Þvermál inntaks | Verð kr. |
---|---|---|---|
H1K | 1" | 32 mm | 313.157 |
H1K | 11/4" | 40 mm | 447.526 |
H1K | 11/2" | 50 mm | 639.552 |
H1K | 2" | 63 mm | 925.699 |
H1K | 21/2" | 75 mm | 1.223.552 |
H1K | 3" | 90 mm | 1.637.992 |
H1K | 4" | 110 mm | 2.258.151 |
Skýringar:
- Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi, fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Stærri heimæðar en 110 mm (4") eru gjaldfærðar í samræmi við raunkostnað. Miðað er við sömu uppfærslureglu eftir stærðum og í töflunni og til viðbótar er tekið mið af flutningsgetu götu- eða stofnæðar sem aðliggjandi er.
Kalt vatn - byggingavatn og brunnar
Byggingavatnskrani til og með 50 mm | Verð kr. |
---|---|
Uppsettur byggingavatnskrani, heildarvinna1 | 89.863 |
Aftenging byggingavatnskrana, yfirborð ófrágengið | 78.032 |
Aftenging byggingavatnskrana, yfirborð malbik eða steypa | 206.272 |
Uppsettur brunnur fyrir vatnsafhendingu2 | 68.463 |
1Þetta verð gildir þegar tengt er við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk. Veitur leggja til búnað við tengingu byggingavatns. Notandi greiðir daggjald í samræmi við verðskrá fram að aftengingu. Byggingavatnskrani er aftengdur um leið og heimæð er tengd inn í hús samkvæmt umsókn, þá er ekki greitt sérstaklega fyrir aftengingu. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu en 50 mm er tenging gjaldfærð í samræmi við raunkostnað. Heimilt er að innheimta gjald fyrir aftengingu strax við tengingu.
2Sé sótt um heimæð í brunn þar sem fasteign er ekki til staðar leggja Veitur til brunninn og koma honum fyrir. Umsækjandi greiðir einnig heimæðargjald í samræmi við umsótta stærð.
Kalt vatn - heimæðar fyrir frístundahús
Staðsetning | Málstærð | Verð kr. |
---|---|---|
Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuhæð | 25 mm | 801.108 |
Heimæð lögð í sama skurð og samtímis heitavatnsheimæð OR | 25 mm | 575.337 |
Skýringar:
- Þessi verð miðast við heimæð allt að 100 metrum að lengd. Lengri heimæð en 100 m eða stærri heimæð gjaldfærist í samræmi við raunkostnað. Umsækjandi greiðir aukakostnað vegna klapparbrots.