Upplýsingaöryggisstefna
Upplýsingar eru mikilvæg verðmæti í starfsemi Veitna til ákvarðanatöku og framvindu ferla. Það er stefna Veitna í upplýsingaöryggismálum að upplýsingar séu réttar, tiltækar og trúnaðar1 gætt þar sem við á. Það gera Veitur með því að:
- finna og meðhöndla áhættu og vinna að stöðugum umbótum
- treysta fólki og fela því umsjón með upplýsingaöryggi með því að efla vitund
- verja gögn og tryggja trúnað
- vinna með gögn þannig að þau skili sér á réttan vistunarstað, séu rétt, spillist ekki og að úr verði áreiðanlegar upplýsingar
- notendur hafi auðveldan aðgang að upplýsingum sem þeir hafa þörf fyrir - Opið en öruggt
Upplýsingaöryggisstefna Veitna byggir á gildum og heildarstefnu Veitna og er sett fram til samræmis við eigendastefnu samstæðu OR.