Water prices
Only in Icelandic at the moment.
Valid from 01.01.2020
Samkvæmt 6. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 er heimilt að leggja á fasteign almennt vatnsgjald hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign. Mannvirki telst tengt vatnsveitu þegar heimæð hefur verið tengd frá vatnsveitulögn í vatnsinntak notanda.
Sala á köldu vatni er undanþegin virðisaukaskatti.
Almenn vatnsnotkun:
Svæði | Tegund | Kr. | Grunnur |
---|---|---|---|
Reykjavík og Akranes | Fastagjald | 5.252 | kr/matseining/ár |
Fermetragjald | 203,81 | kr/m2/ár | |
Álftanes og Stykkishólmur | Fastagjald | 6.572 | kr/matseining/ár |
Fermetragjald | 255,02 | kr/m2/ár | |
Grundarfjörður | Fastagjald | 6.839 | kr/matseining/ár |
Fermetragjald | 301,03 | kr/m2/ár | |
Borgarbyggð og Úthlíð | Fastagjald | 7.499 | kr/matseining/ár |
Fermetragjald | 330,08 | kr/m2/ár |
Skýringar:
- Vatnsgjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu (fastanúmer) og fermetragjaldi eftir stærð samkvæmt fasteignaskrá.
- Bílskúrar og sambærilegt húsnæði á sömu lóð er undanþegið fastagjaldi.
- Vatnsgjald er miðað við byggingarvísitölu og uppfærist skv. henni í desember ár hvert.*
- Vatnsgjaldið fer aldrei yfir 0,5 % af fasteignamati.
- Fyrir vatnsveitur í sumarhúsabyggðum verður árlegt vatnsgjald þó að lágmarki kr. 35.231.
- Veitum er heimilt að gjaldfella álagningu ársins verði greiðslufall á einum eða fleiri reikningum álagningarinnar.
- Fyrirtæki greiða notkunargjald auk vatnsgjalds, skv. lögum (7. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004)
Tegund | Kr. | Grunnur |
---|---|---|
Notkunargjald | 35,21 | kr/m3 |
Byggingavatn | 162,66 | kr/dag |
Skýringar:
- Notkunargjald er miðað við byggingarvísitölu og uppfærist skv. henni á 3ja mánaða fresti.*
- Heimilt er að innheimta notkunargjald samkvæmt áætlun, ef ekki er unnt að koma við mælingu.
- Byggingavatn er aðgangur að vatni til byggingaframkvæmda eða skammtímanotkunar og uppfærist skv. byggingarvísitölu á 3ja mánaða fresti.*
Fast gjald á fyrirtæki, háð stærð mælis
Stærð mælis | Fastagjald | Fast gjald fyrir brunna1 | Grunnur |
---|---|---|---|
15 mm | 41,93 | 139,93 | kr/dag |
20 mm | 42,67 | 140,69 | kr/dag |
25 mm | 54,94 | 152,95 | kr/dag |
32 mm | 61,57 | 159,57 | kr/dag |
40 mm | 74,08 | 172,12 | kr/dag |
50 mm | 90,60 | 188,65 | kr/dag |
65 mm | 122,23 | 219,99 | kr/dag |
80 mm | 237,14 | 335,37 | kr/dag |
100 mm og stærri | 249,31 | 347,60 | kr/dag |
Skýringar:
Fast gjald stendur fyrir föstum kostnaði óháðum notkun. Gjöldin eru uppfærð á 3ja mánaða fresti í samræmi við byggingarvísitölu.*
1Verðlagning byggir á 2. ml. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga. Gildir fyrir afhendingu vatns í brunni þar sem skráð fasteign er ekki til staðar.
Verðskrá sjóveitu
Inntak (mm) | Heimæðagjald (kr.) | Fastagjald (kr/dag) | Breytilegt gjald (kr/m3) |
---|---|---|---|
25-40 | 527.575 | 256,65 | 122,23 |
50-75 | 1.187.045 | 641,70 | 122,23 |
90-110 | 2.242.197 | 1.026,67 | 122,23 |
Skýringar:
Sjóveita er aðeins í boði á takmörkuðu svæði í næsta nágrenni við sjóveitulögn sem lögð hefur verið.
Gjöldin eru uppfærð á 3ja mánaða fresti í samræmi við byggingarvísitölu.
* Þrátt fyrir ákvæði um hækkanir skv. byggingavísitölu munu hækkanir á árinu 2020 að hámarki vera 2,5% í samræmi við lífskjarasamninga.