Hollráð um kalt vatn

Neysluvatnið á Íslandi inniheldur lítið af steinefnum miðað við nágrannalönd okkar. Það þýðir að vatnið okkar er einstaklega góður svaladrykkur.

Image alt text

Vandamál tengd kalda vatninu

Húsið er vatnslaust!

Líkleg skýring:

  • Starfsfólk Veitna er að vinna í nágrenninu. Athugaðu hvort þú hafir fengið tilkynningu í tölvupósti eða sms, sjáir tilkynningu um bilun eða framkvæmdir efst hér á síðunni. Ef enginn tilkynning er á síðunni okkar getur þú haft samband við okkur hér eða á netspjallinu.
  • Einhver hefur lokað inntaki vegna framkvæmda innanhúss. Spurðu nágrannana.
  • Frosið í heimæð eða inntaki. Hafðu samband við starfsfólk tengiþjónustu Veitna á afgreiðslutíma.
  • Heimæðin farin í sundur. Hafðu samband við okkur í síma 516 6000

Þrýstingur er lágur

Líkleg skýring:

  • Heitt og kalt vatn í krönum: Mögulega sía á inntaki orðin stífluð. Hafðu samband okkur hér eða á netspjalli.
  • Heitt vatn á ofnum: Þrýstijafnari eða stjórnbúnaður húseiganda getur bilað. Hafðu samband við pípulagningamann.

Óhreinindi, brúnleitt vatn

Líkleg skýring:

  • Kalt vatn í krönum: Lagnir í húskerfinu geta verið farnar að tærast. Hafðu samband við pípulagningamann.
  • Óhreinindi úr dreifikerfinu eftir viðgerð. Hafðu samband okkur hér eða á netspjalli.

Suð í lögnum

Líkleg skýring:

  • Heita vatnið: Sírennsli einhvers staðar í húskerfinu. Hafðu samband við pípulagningamann.
  • Heitt og kalt vatn: Mögulegur leki á heimæð. Hafðu samband við þjónustuvaktina okkar í síma 516 6000
  • Kalt vatn: Athuga klósettkassa. Hafðu samband við pípulagningamann.
  • Ofnarnir: Suðar í ofnunum. Ofninn allur heitur. Hafðu samband við pípulagningamann.

Högg og smellir í lögnum

Líkleg skýring:

  • Heitt og kalt vatn: Bilun í lögnum eða stjórnbúnaði húseiganda. Hafðu samband við pípulagningamann.
  • Heitt og kalt vatn: Smellir við inntaksgrind. Hafðu samband við okkur hér eða í egnum netspjallið.

Heitt vatn í köldum krönum og öfugt

Líkleg skýring:

  • Millirennsli í húskerfinu. Hitastýrð blöndunartæki geta bilað og þar með kemst heita vatnið inn í kaldavatnslögnina og/eða öfugt eða tengt hefur verið milli krana t.d. í þvottahúsi eða bílskúr. Hafðu samband við pípulagningamann.
  • Millirennsli gæti átt sér stað í nærliggjandi húsum. Ef hægt er, biddu nágranna að athuga hjá sér. Þú getur haft samband við okkur hér eða á netspjalli.
  • Kalda vatnið volgt eða heitt en þó ekki hitaveituvatn (hægt að sjá hvort kalda vatnið kólni við rennsli í smá tíma). Bilun á heimæð, heitt vatn lekur út og hitar kaldavatnsheimæð. Hafðu samband við þjónustuvaktina okkar í síma 516 6000
  • Kalda vatnið volgt eða heitt en þó ekki hitaveituvatn (hægt að sjá hvort kalda vatnið kólni við rennsli í smá tíma). Léleg einangrun á heitum og köldum lögnum sem liggja í sama stokk. Hafðu samband við pípulagningamann.

Vont bragð af vatninu

Líkleg skýring:

  • Kalt vatn: Í nýjum lögnum eða nýviðgerðum getur smitast snittolía og mak. Ráð: Skola vel út. Ætti að lagast með tímanum. Ef engin breyting er á getur þú sent okkur erindi hér.
  • Heitt vatn í köldum lögnum: Sjá hér fyrir ofan millirennsli úr dreifikerfinu.

Hvernig getum við aðstoðað þig?