Jafnrétti

Veitur leggur metnað sinn í að gæta jafnréttis milli starfsfólks fyrirtækisins með því að hafa eftirfarandi atriði að að leiðarljósi:
- Að jafna starfskjör karla og kvenna.
- Að gera körlum og konum kleift að samræma sem best einkalíf og starfsábyrgð.
- Að jafna hlutfall kynja innan OR samstæðunnar og einstakra fyrirtækja/hópa/sviða/deilda.
- Að efla jafnréttismenningu starfsfólks OR samstæðunnar.
- Að efla fræðslu og vitund starfsfólks um málefni og áskoranir minnihlutahópa
- Að efla fræðslu um mikilvægi fjölbreytileika og umburðarlyndis.
- Að vinna gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins.
- Að tekið sé mið af jafnréttissjónarmiðum við stefnumótun og stærri ákvarðanatöku.
„Ekkert mál að vera heima t.d. ef börnin eru veik eða skólafrí"

Nemendur í "Iðnir og tækni"
Veitur eru virkur aðili að Iðnir og tækni samstarfsverkefni OR og Árbæjarskóla þar sem nemendum gefst kostur á að kynnast iðn- og tæknigreinum í þeim tilgangi að vekja áhuga beggja kynja á slíkum störfum.
Við leggjum sérstaka áherslu á jafnrétti kynjanna og því er hlutfall nemasamninga jafnt milli kvenna og karla.