Mælaskipti

Af hverju er verið að skipta um mæla?

Mælar hafa ákveðin löggildingartíma sem fer eftir gerð mælis. Á síðasta löggildingarári er gerð úrtaksprófun og niðurstaða þeirra prófunar segir til um hvort skipta skuli mælunum út.

Veitufyrirtæki þurfa fara eftir Neytendalögum 1061/2008 og 1062/2008 um hvernig mælasöfnum og úrtaksprófun er háttað.

Yfirlit um gildistíma löggildingar:

Gerð mælitækisFyrsta tímabil (ár)Gildistími löggildingar (ár)
Raforkumælir, vélrænn164
Raforkumælir, rafrænn88
Vatnsmælir, kalt vatn, neðra rennslissvið95
Vatnsmælir, kalt vatn, efra rennslissvið75
Vatnsmælir, heitt vatn, vélrænn55
Vatnsmælir, rafrænn125

Almennt um mælaskipti

Hvenær munu verktakarnir koma til mín?

Verktakar á okkar vegum eru í ferlinu að skipta um mæla. Tekin eru ákveðin hverfi í einu. Þegar unnið er í þínu hverfi banka verktakar upp á hjá þér og skipta um mæla. Ef húsráðandi er ekki við skilja verktakar okkar eftir bréf með símanúmeri svo hægt sé að mæla sér móts við þá.

Hvenær dags koma verktakarnir?

Heimili:

Mánudaga til föstudaga, kl. 10:00-19:00

Laugardaga kl. 10:00-16:00

Fyrirtæki:

Mánudaga til föstudaga, kl. 8:00-19:00

Laugardaga kl. 10:00-16:00

Mögulega er hægt að semja við verktaka um að koma á öðrum tíma ef þessar tímasetningar ganga ekki.

Er hægt að panta tíma vegna mælaskipta?

Ekki er hægt að panta tíma vegna mælaskipta. Ef húsráðandi er ekki við skilja verktakar eftir miða með símanúmeri svo hægt sé að mæla sér mót við þá.

Þarf ég að gera eitthvað áður en verktakinn kemur?

Mikilvægt er að húseigendur /-notendur séu búnir að taka allt dót frá mælum svo að mælaskipti gangi hratt og vel fyrir sig. Einnig rétt að minna á að aðgengi að mælum skuli ávalt vera greitt.

Hvernig er verktakinn til fara?

Starfsfólk og verktakar á okkar vegum eru alltaf í gulum vestum merkt Veitum. Einnig bera þeir starfsmannaskírteini með nafni og mynd.

Hvað gerir verktakinn?

Verktaki okkar sér eingöngu um að skipa um mæli, ef notandi hefur spurningar varðandi notkun þá er hægt að nálgast upplýsingar um notkun á Mínum síðum eða með því að hafa samband við Veitur.

Hvað tekur langan tíma að skipta um mæli?

Í flestum tilfellum tekur um það bil 15 mínútur að skipta um mæli. Mælaskiptin geta tekið lengri tíma í einhverjum tilfellum, til dæmis ef lokar eru bilaðir.

Munu mælaskiptin kosta eitthvað?

Viðskiptavinur þarf ekki að greiða fyrir mælaskiptin. Veitur bera kostnaðinn við mælaskiptin.

Frestun mælaskipta

Ég vil að þið skiptið um mæli hjá mér, hvenær komið þið?

Við munum skipta um mæla fyrir þá sem vilja í lok árs. Við munum senda þér tölvupóst með tímasetningu áður en við komum til þín að skipta um mæli.

Get ég fengið nýjan snjallmæli strax hjá ykkur?

Nei það er því miður ekki hægt, við munum hins vegar skipta mæla hjá þeim sem óska eftir því í lok árs. Þá verður settur upp mælir af eldri gerðinni sem svo verður skipt út fyrir snjallmæli þegar röðin kemur að þínu hverfi.

Hvað kostar að fá nýjan mæli vilji ég fá annan af eldri kynslóðinni ?

Það kostar ekkert að fá nýjan mæli.

Hvað er mælirinn hjá mér gamall?

Við getum flett því upp fyrir þig. Endilega hafðu samband.

Hvaða vandamál geta orðið af því að vera með ólöggildan mæli í svona langan tíma ?

Mælarnir okkar hafa lengri endingartíma en löggilding nær til. Ef að mælirinn fellur ekki í prófunum er litið svo á að hann sé í lagi.

Hvað ef mælirinn minn var svo bilaður og það kemur í ljós þegar snjallmælir er settur upp?

Yfirleitt er það þannig að þegar hitaveitumælir bila fer hann að sýna minni notkun en er í raun, ekki meiri. Þannig viðskiptavinurinn hefur yfirleitt greitt fyrir minna magn en hans hefur notað. Það hægist á mælinum og meira magn fer í gegnum mælinn en hann sýnir. Í slíkum tilfellum gæti sú staða komið upp að þegar bilaða mælinum er skipt út þá hækki orkureikningurinn vegna réttra mælinga. Við erum tilbúin til að skoða öll slík mál með sérfræðingum okkar ef þess er óskað.

Hvenær verður settur upp snjallmælir hjá mér?

Útskipting mæla hefst um mitt ár 2022. Við munum skipta veitusvæðinu í 25 svæði og reynt verður að klára hvern hluta áður en byrjað er á þeim næsta. Röðin á svæðunum hefur ekki verið ákveðin.

Í október 2021 munum við taka eitt svæði til sannprófunar, setja upp mæla og keyra hugbúnað til reynslu áður en við förum í aðal verkefnið. Það er því ekki komið á hreint hvenær skipt verður um mæla í þínu hverfi. En þegar röðin kemur að þínu hverfi munum við senda út tilkynningu.

Hvernig getum við aðstoðað þig?