Langa­hlíð og Drápu­hlíð

- .

Veitur í samstarfi við Reykjavíkurborg endurnýja innviði

Um verkefnið: Verkefnið er tvískipt á árin 2026 og 2027. Framkvæmdir verða í Lönguhlíð 2026 og í Drápuhlíð 2027.

Langahlíð fær nýtt útlit þar umhverfið verður bæði öruggara og vistlegra. Aðstæður verða bættar fyrir ganganandi og hjólandi vegfarendur og blágrænar ofanvatnslausnir (gróðurbeð) settar á milli götu og stíga. Nánari skýringar og myndir af endurbættri Lönguhlíð má sjá á vef Reykjavíkurborgar.

Veitur munu endurnýja og tvöfalda fráveitukerfi, leggja nýjar hitaveitulagnir og í Drápuhlíð verður að auki endurnýjaðar lagnir fyrir kalda vatnið. Elstu lagnir á svæðinu eru frá 1956 og tímabært að endurnýja þær. Tvöfalt kerfi fráveitu aðskilur ofanvatn og skólp sem eykur öryggi þegar úrkomuákefð er mikil.

Unnið verður í áföngum, sorphirða tryggð og áhersla lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks. Ljóst er að bílastæðum lokar við vinnusvæðið hverju sinni.

Vakin er athygli á að fráveitulagnir innan lóðar eru ávallt í eigu húseigenda og þegar þær eru endurnýjaðar er skylt að aðskilja regnvatn og skólp. Nánar um heimlagnir í fráveitu.

Í seinni áfanga verður unnið vestan megin í Lönguhlíð frá Drápuhlíð að hringtorgi. Í Drápuhlíð verður unnið frá Lönguhlíð að Reykjahlíð.

Vinnusvæði: Í fyrri áfanga í Lönguhlíð er byrjað við hringtorgið og unnið það að Miklubraut, austan megin (nær Kringlu) og síðan verður Miklabraut þveruð og unnið vestan megin (nær miðbæ) að Drápuhlíð.

Tímaáætlun: Vor 2026 og fram á haustið 2027 með vetrarhléi.

Verkefnastjóri Veitna: Hákon Róbert Jónsson

Samskipti fyrir Veitur: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna