.
Heitavatnslaust er vegna bilunar
Tilkynning um lokun á heitu vatni vegna bilunar
Uppfært kl. 17.25: Öll ættu að vera komin með heitt vatn að nýju.
Uppfært 16.35: Þrýstingur byggist upp hægt og rólega og öll ættu að vera komin með fullan þrýsting á heita vatnið fljótlega eftir kl. 17.
Uppfært 14:20: Búið er að hleypa heitu vatni á lögnina en það tekur lengri tíma fyrir þrýsting að byggjast upp, sér í lagi efst á Digranesinu.
Uppfært 13:15: Viðgerð er að ljúka og þá er hægt að byrja hægt og rólega að hleypa heitu vatni aftur á lögnina. Mikilvægt er að hleypa hægt á lögnina til að hún hitni smám saman. Það tekur um tvær klukkustundir að hleypa á lögnina og lengur fyrir þrýsting að byggjast upp, sér í lagi efst á Digranesinu.
Ef fólk verður vart við leka utanhúss þá þarf að tilkynna okkur það strax í neyðarsímann 516 6161. Ef það lekur innanhúss þarf fólk að hafa samband við pípara.
Uppfært 11:30: Enn er unnið að viðgerð.
Uppfært 10:00: Enn er unnið að viðgerð vegna lekans sem kom upp í gærkvöldi sem hefur áhrif á afhendingu heits vatns í stórum hluta Kópavogs.
Uppfært 09:00: Áhrifasvæði lokunar er mun stærra en í fyrstu var talið. Við erum að vinna í að koma heita vatninu á sem allra fyrst, en það tekur tíma að ná upp þrýstingi. Sjá nánar á korti.
Uppfært 07:55 viðgerð er í fullum gangi og unnið er eins hratt og auðið er
Uppfært 06:41 Enn verið að vinna að viðgerð. Notendur í nágrenni við Hamraborg þar sem búið var að hleypa á hafa tilkynnt áframhaldandi vatnsleysi, málið er til skoðunar.
Uppfært 02:34 Búið er að hleypa á vatni alls staðar nema Rauðgata 30-66, Rauðgata 6-28, Grængata 4, Skemmuvegur 6-32, Skemmuvegur 48, Skemmuvegur 34-46, Smiðjuvegur 2 og 4, Nýbílavegur 2. Áframhaldandi viðgerðir hefjast strax í fyrramálið.
Vegna gruns um leka á heitavatnslögn þarf að loka fyrir heitt vatn á eftirfarandi svæði:
Skemmuvegur, Álfahella/Álfabakki (Kópavogsmegin), Nýbýlavegur að Lund, Digranesvegur og nærliggjandi götur.
Unnið er að því að staðsetja lekann og er beðist velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. Frekari upplýsingar verða veittar um leið og þær liggja fyrir.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.