Heita­vatns­laust í hluta Árbæjar

.

Information in English below.

 

Vegna endurnýjunar lagna í dælustöð í Árbæ verður heitavatnslaust í stórum hluta Árbæjar mánudaginn 31.ágúst frá klukkan 8:00 um morguninn og þar til seinnipartinn.  Sjá nánar á korti. 
 
Heita vatninu verður hleypt á að nýju hægt og rólega og öll á svæðinu ættu að vera komin með nægan þrýsting um klukkan 17:30. 

Í Árbænum er mikilvæg dælustöð sem tryggir gott rennsli heita vatnsins í hverfinu. 

Veitur eru að endurnýja lagnir í dælustöðinni og til að gera það með öryggi allra í fyrirrúmi þarf að loka fyrir heita vatnið einn dag í stórum hluta hverfisins.  
 

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.   

Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum. Félag pípulagningameistara hefur tekið saman leiðbeiningar fyrir húseigendur. Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni.    

 Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi sem sumt er komið til ára sinna er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.    

Neyðarsími Veitna er 516-6161 

Komi upp lekar innanhúss þarf að hafa samband við pípara. 

Við munum upplýsa um gang mála á þessari síðu.   

Veitur endurnýja búnað til að tryggja góðar tengingar við nauðsynlega innviði í Árbænum og lífsgæði til framtíðar. 

---------------------------------------------------------------------- 

Due to pipe renewal work at a pumping station in Árbær, there will be no hot water in a large part of the neighborhood on Monday, 31 August, from 8:00 in the morning until late afternoon. See the map here.  
The hot water supply will be restored gradually, and everyone in the affected area should have sufficient water pressure by around 17:30.   
 
An important pumping station in Árbær helps maintain good hot water flow throughout the neighborhood. 
Veitur is renewing pipes at the pumping station. To carry out the work safely, the hot water supply needs to be shut off for one day in a large part of the neighborhood. 
 
 
It is important that residents turn off their taps to prevent accidents and damage when the water is turned back on. 
 

We advise property owners to check their internal plumbing systems. The Association of Master Plumbers has compiled guidance for property owners. It is also a good idea to keep windows closed during this time to retain heat indoors. 

When water is restored to an extensive pipeline system, some of which is old, leaks may naturally occur. In such cases, it is important to report them so that action can be taken as quickly as possible. 

Veitur´s emergency number is 516-6161. 

If leaks occur indoors, a plumber should be contacted. 

We will provide updates on this page. 

Veitur is renewing equipment to ensure reliable connections to essential infrastructure in Árbær and quality of life for the future.