.
Truflanir á rafmagni og hitaveitu vegna eldingaveðurs
English below:
Uppfært kl. 17.45: Eðlilegur þrýstingur ætti að vera kominn á heita vatnið alls staðar nema á Kjalarnesi. Það tekur nokkra stund til viðbótar.
Uppfært kl. 16.45: Lágur þrýstingur er á heita vatninu í Hveragerði og Þorlákshöfn fleiri stöðum vegna rafmagnstruflana. Í Úthlíð er heitavatnslaust.
Rafmagn er orðið stöðugt á höfuðborgarsvæðinu, en það má gera ráð fyrir að slegið hafi út öryggjum og lekaliðum í rafmagnstöflum. Þá þarf að slá þeim inn aftur.
Truflanir á rafmagni og hitaveitu á höfuðborgarsvæðinu vegna veðurs.
Eldingar hafa orsakað rafmagnstruflanir á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur bein áhrif á dreifingu á heitu vatni á sama svæði.
Við erum að vinna í málinu og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
-------------
Updated at 17.45: Normal hot water pressure should be in all areas except for Kjalarnes. It will take longer for the pressure there to build up.
Updated at 16:45: There is low pressure in the hot water supply in Hveragerði and Þorlákshöfn and several other areas due to power outages. Úthlíð is without hot water at the moment.
Electricity has been restored in the capital area, but it can be expected that circuit breakers and residual-current devices (RCDs) in electrical panels may have tripped. They need to be switched back on.
Power and hot water outages due to weather conditions.
----
Lightning has caused power outages in the capital area. This directly affects the distribution of hot water in the same area.
We are working to resolve the issue and apologize for any inconvenience this may cause.