Brún­leitur litur í heita­vatninu á Kjal­ar­nesi

- .

Tilkynningar um brúnan lit á heitavatni á Kjalarnesi.

Veitum hafa í dag borist tilkynningar um brúnleitan lit á heitu vatni á Kjalarnesi. Við skoðun virðist ástæða litarins vera vegna tengingar á nýrri flutningsæð. Búist er við að liturinn skolist út á næstu dögum en vel er fylgst með stöðunni.