Kalda­vatns­laust við Dalbraut, Rauðalæk og nágrenni

.

Kaldavatnslaust er vegna bilunar

Uppfært 14:30: Allir Komnir með vatn aftur.

Uppfært 13:20:
Leikskólinn, elliheimilið og geðdeildin verða komin með fullan þrýsting um kl 13:30. Restin af svæðinu verður komin með vatn um kl 15:00.

Uppfært kl 10:10:
Lokun verður að minnsta kosti til kl 14:00. Frekari upplýsingar verða gefnar um eitt leitið.

Vegna viðgerðar verður kaldavatnslaust við Dalbraut, Rauðalæk og nágrenni í dag. Sjá nánar á korti.

Verið er að vinna vegna leka, við birtum frekar upplýsingar hér þegar þær liggja fyrir.
Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum.

Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.