- .
Skólp fer í sjó frá dælustöð

Vegna bilanaleitar fer skólp í sjó frá dælustöðinni við Faxaskjól - .
Fólki er bent á að halda sig frá sjónum og ströndinni þar sem skólp fer í sjó.
Skilti verða sett upp við hverja stöð og verða fjörur hreinsaðar að framkvæmdum loknum.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.
Neyðarlúgur fráveitu eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.