.
Heitavatnslaust er vegna bilunar
Uppfært 15:40: Viðgerð lokið. Allir notendur ættu að vera komnir með vatn.
Uppfært 13:30: Áætlað er að heitt vatn verði komið aftur á um 18:00 í kvöld
Vegna bilunar er heitavatnslaust í hluta Seljahverfis. Sjá nánar á korti.
Unnið er að viðgerð en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um áætlaða tímalengd eins og er. Tilkynningin verður uppfærð um leið og frekari upplýsingar berast.
Fólki er bent á að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysum eða tjóni þegar vatnið kemst aftur á. Húseigendur eru einnig hvattir til að fylgjast með innanhússkerfum sínum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.