Vest­urbær og Seltjarn­ar­nes: Rafmagn komið á aftur.

.

Rafmagnslaust vegna háspennubilunar.

Uppfært 21:40 - Rafmagn komið aftur á hjá öllum.
Uppfært 20:30
- Bilun er fundin í streng og unnið er að viðgerð.
Uppfært 19:20
- Vinnuflokkar eru á leið á vettvang og það getur tekið einhvern tíma þar til rafmagn kemst á aftur.
Rafmagnslaust er vegna háspennubilunar í hluta Vesturbæjar Reykjavíkur og Seltjarnarness 18:25

Unnið er að því að greina bilun og vonast er til að rafmagn verði komið á innan stundar. Við munum uppfæra á vef eftir því sem fram vindur.