Heita­vatns­laust í hluta Grafar­vogs.

- .

Heitavatnsleki við Rimaflöt / Gylfaflöt, unnið er að viðgerðum.

Vegna viðgerðar er heitavatnslaust við Gufunesið, Bæjarflöt, Viðarrima og Smárarima. 09.06.2026.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Uppfært 23:07: Enn er unnið að viðgerðum en þrýstingur ætti að vera að koma aftur inn á Bæjarflöt, Viðarrima og Smárarima. Enn er lokað fyrir á Gufunesinu á meðan viðgerðir standa yfir.

Uppfært: 01:25 Búið er að hleypa á þrýsting aftur og ættu allir notendur að verða komnir með heitt vatn aftur