- .
Samstarfsverkefni um endurnýjun lagna og stofnstíga
Um verkefnið: Veitur í samstarfi við HS Veitur og Betri samgöngur ásamt fleirum endurnýja lagnir og stofnstíga gangandi og hjólandi vegfarenda við Fjarðarhraun frá Hafnarfjarðarvegi og yfir Flatahraun.
Flutningsgeta fyrir heitt vatn og rafmagn verður aukin á svæðinu með nýjum og stærri lögnum.
Unnið verður að mestu í göngustíg meðfram Fjarðarhrauni og Hólshrauni. Þvera þarf gatnamót og götur um tíma, en hjáleiðir verða settar upp ásamt umferðastýringu þar sem við á.
Hitaveitulagnirnar eru umfangsmiklar og vinnusvæðið því töluvert, en áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks.
Uppfært 1.6.2025: Vinna fer að hefjast í Hólshrauni. Aðgengi að fyrirtækjum verður tryggt allan tímann, en ljóst að það verður þrengra um vik.
Vinnusvæði: Í göngustígum við Fjarðarhraun og Hólshraun frá Hafnarfjarðarvegi yfir Flatahraun.
Tímaáætlun: Framkvæmdir skiptast á tvö ár.
Sumarið og haust 2025 verður unnið í fimm áföngum
1. Unnið í göngustíg við Hólshraun á milli Bæjarhrauns og Kaplahrauns.
2. Gatnamót Hólshrauns og Fjarðarhrauns
3. Unnið i göngu- og hjólastíg á milli Fjarðarhrauns og Hafnarfjarðarvegar
4. Í stofnstíg við Fjarðarkaup
5. Bæjarhraun og Flatahraun þveruð
Vorið 2026 verður unnið í göngustíg meðfram Fjarðarhrauni á milli Hólshrauns og Flatahrauns
Verkefnastjóri Veitna: Hörður J. Harðarson
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna
Samstarfsaðilar: HS Veitur, Betri samgöngur, Vegagerðin, Hafnarfjarðarbær og Garðabær.