.
Information in English below
Heitavatnslaust verður í Seljahverfi frá frá kl.08:00-21:00 þriðjudaginn 13. október.
Veitur eru að endurnýja stofnlögn hitaveitu fyrir hverfið og endurnýja búnað sem er bilaður og þarf að laga fyrir veturinn. Þá þarf að loka fyrir heita vatnið á meðan á svæðinu á kortinu.
Við hvetjum íbúa til að loka gluggum til að halda hitanum inni á meðan lokun stendur.
Mikilvægt er að hafa skrúfað fyrir krana innanhúss til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar heita vatnið kemur aftur á. Húseigendum er bent á að huga að sínum innanhússkerfum, til dæmis gólfhitakerfum. Félag pípulagningameistara hefur gefið út leiðbeiningar fyrir húseigendur.
Þegar vatninu er hleypt á lagnir að nýju er það gert hægt og rólega. Það geta komið upp lekar í viðamiklu dreifikerfi eftir svona lokun og þá er mikilvægt að láta okkur vita strax í neyðarsímann 561 6161.
Búnaður sem verið er að laga er mikilvægur fyrir hitaveituna á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Spurt og svarað
Af hverju þarf að loka svona lengi?
Viðgerðin er á stað þar sem heita vatnið fyrir hverfið rennur í gegn. Það tekur þetta langan tíma að tæma lagnir og gera við áður en hægt er að hleypa vatninu á aftur. Á sama tíma er skipt út búnaði sem er mikilvægur fyrir hitaveituna í Seljahverfi. Það er gert samtímis til að nýta heitavatnsleysið.
Af hverju er þetta ekki gert að nóttu til?
Þar sem vinnan fer meðal annars fram utanhúss er mikilvægt að það sé gert í í dagsbirtu þegar sýnileikinn er mestur. Það er fyrir öryggi bæði vegfarenda og starfsfólk. Nú er farið að kólna á nóttinni og hættan á næturfrosti eykst, en þá forðumst við að taka heita vatnið af heimilum.
Hvað á ég að gera ef það lekur innanhúss hjá mér eftir þetta?
Þá þarf að kalla til pípara og tryggingar. Öll innanhússkerfi eru í eigu húseiganda og á ábyrgð þeirra.
Hvað ef það kemur leki í garðinum eða úti í götu?
Þá þarf að heyra í okkur í neyðarsímanum 561 6161 og við komum að gera við. Fyrst er gert við til bráðabirgða og þá er vatnið tekið af stutta stund á meðan. Þegar við komum aftur í endanlega viðgerð verður heita vatnið tekið af og látið vita með fyrirvara.
-----------------------------
No hot water in Seljahverfi
There will be no hot water in Seljahverfi (see map) from 8:00 to 21:00i on Tuesday, 13 October.
Veitur is renewing a key district heating pipeline serving the neighbourhood and replacing equipment that has failed and needs to be repaired before winter. To carry out this work safely, the hot water supply must be temporarily shut off.
We encourage residents to keep windows closed to retain indoor heat during the outage.
It is important to ensure that indoor hot water taps are turned off to reduce the risk of injury or damage when the hot water supply is restored. Homeowners are also advised to check their internal heating systems, such as underfloor heating systems. The Master Plumbers Association has published guidance for homeowners (in Icelandic).
When the hot water supply is restored, it will be done gradually. Leaks can occasionally occur in an extensive distribution system after an outage of this kind. If you notice a leak, please contact our emergency hotline immediately on 561 6161.
The equipment being repaired is important for the operation of the district heating system across the entire Capital Region.
Frequently Asked Questions
Why does the outage have to last this long?
The repair is taking place at a point where the hot water supply for the neighbourhood passes through the system. It takes time to drain the pipelines, carry out the repair work, and then restore the water flow. At the same time, other important district heating equipment in Seljahverfi is being replaced. This work is being completed during the same outage to make the most of the interruption.
Why isn't the work being carried out at night?
Part of the work is being carried out outdoors, so it is important that it takes place in daylight when visibility is at its best. This is for the safety of both the public and our staff. As temperatures are now beginning to drop overnight and the risk of frost is increasing, we avoid shutting off hot water to homes during the night whenever possible.
What should I do if there is a leak inside my property afterwards?
You should contact a licensed plumber and your insurance company. All internal plumbing and heating systems are the property owner's responsibility.
What if there is a leak in my garden or in the street?
Please contact our emergency hotline on 561 6161 and we will attend to the repair. An initial temporary repair will usually be carried out first, which may require a short interruption to the hot water supply. If a permanent repair is needed at a later stage, residents will be notified in advance of any planned hot water interruption.