Heita­vatns­laust í Þorláks­höfn og nágrenni frá kl.22 4. júní til kl. 8 þann 5. júní

- .

Information in English below

Heitavatnslaust í Þorlákshöfn og nágrenni frá kl.22 4. júní til kl. 8 þann 5. júní

English below
Uppfært kl. 7.10: Byrjað er að hleypa heitu vatni á allt kerfið að nýju. Það tekur þó nokkra stund áður en fullum þrýstingi er náð. Ef það verður vart við leka utanhúss þá er brýnt að tilkynna það strax til okkar í síma 516 6200.

Vegna viðhalds á nauðsynlegum búnaði hitaveitunnar verður heitavatnslaust í Þorlákshöfn og nágrenni frá þriðjudagskvöldi 4. júní kl. 22 til miðvikudagsmorguns 5. júní kl. 8.

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.

Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum. Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni.

Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.

Við munum upplýsa um gang mála á þessari síðu.

Nokkrar algengar spurningar og svör varðandi lokunina

Þarf endilega að taka allt vatnið af?
Við skiljum vel að það komi sér illa fyrir íbúa og fyrirtæki að vera án heits vatns en því miður verður svo að vera þegar um viðamikið viðhald er að ræða. Veitur hafa skipulagt lokunina þannig að hægt sé að klára mikilvægt viðhald á einni nóttu.

Hvað gerist ef vatnið er komið á hjá mér fyrir kl. 8?
Ef heita vatnið verður komið í lag fyrir þann tíma þá mun það ekki verða tekið af aftur nema óvæntar uppákomur verði.

Hvað ef mér finnst vera lágur þrýstingur á vatninu eftir framkvæmdina?
Það getur tekið einhvern tíma að ná fullum þrýstingi aftur.

Hvað ef heita vatnið er ekki komið á kl. 8:00
Við biðjum ykkur um að sýna því skilning og þolinmæði. Við uppfærum hér á síðunni eftir því sem fram vindur.

Þarf að slökkva á innanhúskerfum og snjóbræðslu?
Þar sem slík kerfi eru mörg og misjöfn getum við ekki svarað þessu almennt. Best er að hafa samband við pípara eða söluaðila kerfisins til að fá leiðbeiningar.

_________________________________________________________________________________________

There will be no hot water in Þorlákshöfn from 10 p.m. on June 4th to 8 a.m. on June 5th.
Updated at 7.10 :
The process of restoring hot water to the entire system has begun. However, it will take some time before full pressure is reached. If any outdoor leaks are detected, it is urgent to report them immediately to us at 516 6200.

Due to essential maintenance on equipment of the district heating system, there will be no hot water in Þorlákshöfn and surrounding areas from Tuesday evening, June 4th at 22:00 until Wednesday morning, June 5th at 08:00.

It is important to turn off the taps to prevent accidents and damage when the water returns.

We remind homeowners to check their inhouse heating systems. It's good to keep the windows closed during this time to retain heat indoors.

When the water is restored after the shutdown, leaks may occur from the extensive piping system. In such cases, it is important to report them immediately so they can be addressed promptly.

We will provide updates on this page.

Frequently Asked Questions and Answers regarding the closure

Do you need to turn off all the water?
We understand that it's inconvenient for residents and businesses to be without hot water, but unfortunately, it's necessary for such maintainance. Veitur Utilities have planned the closure so that the necassary maintainance can be completed in one night.

What if the hot water is restored before 8:00 a.m.?
If hot water is restored before that time, it will not be turned off again unless unexpected issues arise.

What if I experience low water pressure after the work is done?
It may take some time to restore full pressure.

What if hot water isn't restored by 8:00 a.m.?
We ask for your understanding and patience. We will update this page as progress is made.

Do I need to turn off indoor systems and snow melting systems?
Since these systems vary widely, we cannot provide a general answer. It's best to contact plumbers or the system's vendors for guidance.

Hvernig getum við aðstoðað þig?