Vatna­garðar og nágrenni

- .

Styrking dreifikerfis rafmagns

Um verkefnið: Nýir háspennustrengir verða lagðir í jörðu til að tryggja orkuskipti fyrir vöru- og farþegaflutninga á svæðinu auk þess að auka almennt getuna til orkuskipta.

Ný aðferð, steyptir rörastokkar, er notuð við lagningu strengjanna á viðkvæmari svæðum, en aðferðin tryggir að hægt sé að takmarka vinnusvæðið hverju sinni. Það vinnur okkur í haginn fyrir framtíðartengingar, auk þess að vera til lengri tíma umhverfisvænni og ódýrari leið.

Háspennustrengirnir tengjast nýrri aðveitustöð (A13) sem er að rísa við Sægarða 1. Unnið er í götunni hverju sinni og við vinnusvæðið verða þrengingar og/eða einstefna á götu. Vatnagarðar verða einstefna til vesturs á meðan unnið er þar og ökubrýr settar upp til að tryggja aðgengi að fyrirtækjum á svæðinu.

Sá hluti verksins sem unnin er árið 2026 og fram á nýtt ár 2027 er unninn í áföngum þar sem unnið er í 1-200 metra köflum hverju sinni. Hver áfangi er kláraður að fullu áður en næst hefst.

Nánari upplýsingar um heildarverkið, orkuskipti og uppbyggingu við Sundahöfn.

Áfangaskipting er áætluð í þessari röð.

Tímaáætlun fyrir seinni áfanga verður sett inn þegar framvindan er metin.

1. Vatnagarðar í júlí til september

2. Sundagarðar

3. Köllunarklettsvegur, Héðinsgata og Klettagarðar

Tímaáætlun: Júlí 2026 til febrúar 2027.

Verkefnisstjóri: Guðmundur S. Sigurgeirsson

Samskipti: Silja Ingólfsdóttir og Birna Daðadóttir Birnir hjá þjónustu Veitna

Hvernig getum við aðstoðað þig?