Heita­vatns­laust við Kamba­sel, Jökla­sel, Kaldasel og Jórusel

.

Heitavatnslaust er vegna leka

Uppfært 18:50: Viðgerð er að verða lokið og byrjað er að hleypa vatni aftur á, gert er ráð fyrir að fullur þrýstingur verði kominn á um kl. 20:00.

Uppfært 10:30:
Svæði lokunar hefur stækkað. Einnig er heitavatnslaust við Kleifarsel 2-16 og Kambasel 1-27.

Vegna bilunar verður heitavatnslaust við Kambasel, Jöklasel, Kaldasel og Jórusel fim 27. ágúst 09:00. Sjá nánar á korti.
Tímasetning um lok viðgerðar liggur ekki fyrir eins og er. Uppfært verður á þessari síðu

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?