- .
Skólp fer í sjó frá dælustöð

Vegna viðhalds á hreinsistöð í Ánanaustum fer skólp í sjó frá dælustöðvum við Faxaskjól, Boðagranda, Vesturhöfn og Ánanaust frá mán 23. febrúar til föst 27. febrúar 2026.
Fólki er bent á að halda sig frá sjónum og ströndinni þar sem skólp fer í sjó.
Skilti verða sett upp við hverja stöð og verða fjörur hreinsaðar að framkvæmdum loknum.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.
Neyðarlúgur fráveitu eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.