Viðgerð á kalda­vatns­lögn á Hofs­valla­götu

- .

Takmarkanir á umferð

Veitur eru að endurnýja búnað í kaldavatnslögn á gatnamótum Ásvallagötu og Hofsvallagötu. Ásvallagata við hús númer 15 og 28 verður lokuð fyrir umferð bíla. Gangandi og hjólandi vegfarendur komast óhindrað leiðar sinnar.

Hjáleiðir verða settar upp þar sem við á.

Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólk og við viljum vita af því tafarlaust ef öryggismálum er ábótavant.

Áætlað er að verkið taki tæpar tvær vikur.

Hvernig getum við aðstoðað þig?