Heita­vatns­laust í Kópa­vogi

.

Lokað fyrir heittvatn vegna viðgerðar.

Tilkynning um lokun á heitu vatni

Uppfært 02:34 Búið er að hleypa á vatni alls staðar nema Rauðgata 30-66, Rauðgata 6-28, Grængata 4, Skemmuvegur 6-32, Skemmuvegur 48, Skemmuvegur 34-46, Smiðjuvegur 2 og 4, Nýbílavegur 2. Áframhaldandi viðgerðir hefjast strax í fyrramálið.

Vegna gruns um leka á heitavatnslögn þarf að loka fyrir heitt vatn á eftirfarandi svæði:

Skemmuvegur, Álfahella/Álfabakki (Kópavogsmegin), Nýbýlavegur að Lund, Digranesvegur og nærliggjandi götur.

Unnið er að því að staðsetja lekann og er beðist velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. Frekari upplýsingar verða veittar um leið og þær liggja fyrir.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?