Heita­vatns­leysi á Völl­unum í 221 Hafnar­firði

.

Vegna bilunar í heitavatnsbúnaði á Völlunum verður heitavatnslaust tímabundið. Unnið er að viðgerð.

Uppfært kl . 01:45  Viðgerð er lokið og eiga öll að vera komin með heitt vatn aftur.

Uppfært kl. 01:00
 Enn er unnið að viðgerð, en gera má ráð fyrir að það taki þó nokkra stund til viðbótar þar til öll verða komin með heitt vatn að nýju.

Uppfært kl. 00:05 – 
Unnið er að viðgerð eins hratt og örugglega og hægt er.

Vegna bilunar er heitavatnslaust á Völlunum í 221 Hafnarfirði. Unnið er í því að koma því aftur á og við munum uppfæra hér á síðunni eftir því sem fram vindur.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?