- .
Veitur endurnýja dælu fyrir hitaveituna á svæðinu
Austurveita er hitaveitan sem þjónar hluta Hveragerðis og nágrennis. Hún fær heita vatnið frá borholu í Gljúfurárholti. Í holunni er dæla sem dælir heita vatninu upp til að hægt sé að nýta það til húshitunar. Dæluna þarf að endurnýja og setja öflugri dælu í holuna, enda ljóst að núverandi búnaður dugar ekki til að anna eftirspurn í veitunni á kaldasta tíma ársins.
Dagana 17.-20. ágúst verður nýrri dælu komið fyrir í Gljúfurárholti og þá þarf að taka þá gömlu úr holunni. Slíkt er eingöngu hægt með stöðvun á dælingu heita vatnsins allan tímann.
Þessa daga verður vatn á veitunni, en það er bæði minna en alla jafna og líka kaldara, eða um 55°C. Það þýðir að meira vatn þarf til að hita húsin að hitastiginu sem fólk á að venjast.
Veitur biðla til íbúa sem tengd eru Austurveitu að fara sérstaklega vel með vatnið frá morgni mánudagsins 17. ágúst og fram á kvöld fimmtudaginn 20. ágúst.
Stórnotendur munu einnig draga verulega úr notkun þessa daga.
Með sameiginlegu átaki í því að draga mikið úr notkun er von okkar að hægt sé að tryggja vatn á allt svæðið án skerðinga eða lokana.
Framkvæmdin er mikilvæg til að tryggja heitt vatn á Austurveitu næsta vetur.