Kalt vatn komið á Eski­torg, Litlu­hlíð, Löngu­hlíð, Hamra­hlíð, Eski­hlíð og Hörgs­hlíð

.

Truflanir á kalda vatninu er vegna bilunar.

Uppfært kl. 02:40: Búið er að hleypa köldu vatni á kerfið.

Uppfært kl. 22:35:
Rof kom á kaldavatnslögn. Búið er einangra bilunina og koma í veg fyrir frekari leka.

Uppfært kl. 22:15:
Kaldavatnslaust er við Skógarhlíð 14-20.

Truflun er á köldu vatni vegna bilunar við gatnamótin Eskitorg, Litluhlíð, Lönguhlíð, Hamrahlíð, Eskihlíð og Hörgshlíð .

Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið.

Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?