- .
Nýtt hverfi í uppbyggingu
Veitur eru að tengja nýtt hverfi í Vatnsendahvarfi með lögn við dælustöð til að tryggja nægan þrýsting á heita vatninu í hverfinu. Auk þess erum við að bæta afköst í dælustöðinni.
Þar sem vinnu við lagnir og dælustöð er ekki lokið, verður ekki hægt að tengja hús við heitt vatn fyrr en það gerist.
Við vinnum eins hratt og við getum og erum vongóð að framkvæmdir klárist fyrir áramót. Við látum vita ef það tekst.
Þau sem þegar hafa fengið staðfestingu á tengingu við heitt vatn verða tengd eins fljótt og hægt er, en dreifikerfið ræður enn sem komið er ekki við meira en það.
Vinnutenging fyrir rafmagn
Við getum tengt byggingaraðila við rafmagn, svokallaða vinnutengingu. Vinsamlega athugið að sækja sérstaklega um það, óháð umsókn um heitt vatn. Það flýtir fyrir rafmagnstengingunni.
Áætluð tímalína
Lagnavinna
Áætlað er að ljúka lagnavinnu aðra vikuna í desember.
Dælustöð
Áætluð lok stækkunar eru í byrjun febrúar.