.
Rafmagnslaust er vegna bilunar
Uppfært kl 23:29: Rafmagn komið aftur á öll íbúðarhús á svæðinu.
Uppfært kl. 21:11: Búið að finna hvaðan bilunin kom, dreifistöð við Kleppsveg. Rafmagn á að vera komið á allt svæðið nema Kleppsveginn, því miður er ekki kominn tími á hvenær það kemur inn en unnið er hörðum höndum á að laga þessa bilun í dreifistöðinni.
Uppfært kl. 20:16: Bilun aðeins flóknari en búist var við í fyrstu, rafmagn fer að koma á restina af íbúðarhúsum í hverfinu vonandi á næsta klukkutímanum.
Uppfært kl. 19:10: Háspennubilun kom upp á hluta póstnúmeri 104 en viðgerð er langt komin, flestir notendur komnir með rafmagn að nýju.
Uppfært kl. 18.40: Svæðið sem um ræðir má sjá á kortinu hér neðar á síðunni. Unnið er að því að koma rafmagni aftur á, en ekki hægt að segja til um hvernær öll hafa fengið rafmagn að nýju.
Vegna bilunar er rafmagnslaust í hluta af póstnúmeri 104. .
Unnið er að viðgerð.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Það verða uppfærðar upplýsingar um leið og þær berast.