.
Skólp fer hugsanlega óhreinsað í sjó frá hreinsistöð Veitna við Ánanaust
Vegna botnhreinsunar á inntaksþró í Ánanaustum geta skapast aðstæður þar sem neyðarlúga gæti opnast og óhreinsað skólp fer tímabundið í sjó.
Fólki er bent á að halda sig frá sjónum og ströndinni þar sem skólp fer í sjó.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.
Neyðarlúgur fráveitu eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.