Kalda­vatns­laust við Stang­ar­holt fös. 02. desember kl. 15:30-20:30

.

Vegna viðgerðar verður kaldavatnslaust við Stangarholt 11 & 22-36 fös. 02. desember kl. 15:30-16:30.

UPPFÆRT 17:00

Vegna óviðráðanlegra orsaka þarf að framlengja lokuninni til klukkan 20:30

Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið. Gættu þess þó að það sé ekki alveg sjóðheitt því það getur sprengt postulín.

Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.

Hvernig getum við aðstoðað þig?