.
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við Ánanaust og Hringbraut og minni þrýstingur á heitu vatni við Granda, Mýrargötu og Nýlendugötu og nærliggjandi götum
UPPFÆRT kl. 20:30 Það lítur út fyrir að allir notendur verði komnir með heita vatnið aftur kl. 21:00
UPPFÆRT 17:00 Því miður er bilunin stærri en gert var ráð fyrir og því má búast við heitavatnsleysi fram eftir kvöldi.
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við Ánanaust og Hringbraut og minni þrýstingur á heitu vatni við Granda, Mýrargötu og Nýlendugötu og nærliggjandi götum - . Sjá nánar á korti.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.