Heita­vatns­laust á öllu Álfta­nesi frá kl. 5 um morg­uninn þann 24. apríl

.

English below

Uppfært kl. 14:23. Við erum byrjuð að hleypa heitu vatni á kerfið en það mun taka tíma að ná upp fullum þrýsting.

Heitavatnslaust verður á öllu Álftanesi frá kl. 05 til kl. 16 þann 24. apríl.

English below

Vegna tengingar á nýrri heitavatnslögn sem mun tryggja öllum íbúum Álftaness heitt vatn til framtíðar, verður heitavatnslaust á öllu Álftanesi frá kl. 05 til kl. 16 miðvikudaginn 24. apríl. Samtímis verður gert við þann hluta sem skemmdist nýlega.

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.

Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum. Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni.

Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.

Við munum upplýsa um gang mála á þessari síðu.

Vinnusvæðin eru við Álftanesveg og til að gæta öryggis vegfarenda og starfsfólks þarf að þrengja veginn á kafla. Þar verða sett upp tímabundin umferðarljós og gera má ráð fyrir einhverjum töfum á umferð vegna þessa.

Nokkrar algengar spurningar og svör varðandi lokunina

Þarf endilega að taka allt vatnið af?

Við skiljum vel að það komi sér illa fyrir íbúa og fyrirtæki að vera án heits vatns en því miður verður svo að vera þegar um svona stórt verk er að ræða. Veitur hafa skipulagt lokunina þannig að hægt sé að klára bæði verkin á sama degi.

Hvað gerist ef vatnið er komið á hjá mér fyrir kl. 16?

Ef heita vatnið verður komið í lag fyrir þann tíma þá mun það ekki verða tekið af aftur nema óvæntar uppákomur verði.

Hvað ef mér finnst vera lágur þrýstingur á vatninu eftir framkvæmdina?

Það getur tekið einhvern tíma að ná fullum þrýstingi aftur.

Hvað ef heita vatnið er ekki komið á kl. 16:00

Við biðjum ykkur um að sýna því skilning og þolinmæði. Við uppfærum hér á síðunni eftir því sem fram vindur.

Þarf að slökkva á innanhúskerfum og snjóbræðslu?

Þar sem slík kerfi eru mörg og misjöfn getum við ekki svarað þessu almennt. Best er að hafa samband við pípara eða söluaðila kerfisins til að fá leiðbeiningar.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------

Updated at 14:23. We have opened for the hot water in the system, but it will take time to reach full pressure.

There will be no hot water in Álftanes from 5:00 a.m. to 4:00 p.m. on April 24th.

Due to the connection of a new hot water pipeline that will ensure hot water for all residents of Álftanes in the future, there will be no hot water available in Álftanes from 5:00 a.m. to 4:00 p.m. on Wednesday, April 24th. At the same time, repairs will be made to the recently damaged part.

It is important to turn off the hot water taps to prevent accidents and damage when the water returns.

We remind homeowners to check their inhouse heating systems. It's good to keep the windows closed during this time to retain heat indoors.

When the water is restored after the shutdown, leaks may occur from the extensive piping system. In such cases, it is important to report them immediately so they can be addressed promptly.

We will provide updates on this page.

The work areas are close to Álftanesvegur, and to ensure the safety of passers by and staff, the road will be narrowed in sections. Temporary traffic lights will be installed, and some delays in traffic are expected.

Frequently Asked Questions and Answers regarding the closure:

Do you need to turn off all the water?

We understand that it's inconvenient for residents and businesses to be without hot water, but unfortunately, it's necessary for such a large project. Veitur Utilities have planned the closure so that both tasks can be completed on the same day.

What if the hot water is restored before 4:00 p.m.?

If hot water is restored before that time, it will not be turned off again unless unexpected issues arise.

What if I experience low water pressure after the work is done?

It may take some time to restore full pressure.

What if hot water isn't restored by 4:00 p.m.?

We ask for your understanding and patience. We will update this page as progress is made.

Do I need to turn off the inhouse system and snow melting system?

Since these systems vary widely, we cannot provide a general answer. It's best to contact plumbers or the system's vendors for guidance.

Hvernig getum við aðstoðað þig?