Heita­vatns­laust á Kjal­ar­nesi. Viðgerð lokið.

.

Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.

English below
Uppfært kl. 15.10: Viðgerð er lokið og búið að hleypa vatninu á Kjalarnes og Esjumela. Einstaka lekar hafa komið upp sem verið er að athuga nánar.

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust á Kjalarnesi - . Sjá nánar á korti.

Viðgerðin var ákveðin með góðum fyrirvara. Íbúar og fyrirtæki hafa fengið tilkynningu með tölvupósti og smáskilaboðum.

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.

Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum. Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni.

Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.

Nokkrar algengar spurningar og svör varðandi lokunina

Þarf endilega að taka allt vatnið af?

Við skiljum vel að það komi sér illa fyrir íbúa og fyrirtæki að vera án heits vatns en því miður verður svo að vera þegar um svona stórt verk er að ræða.

Hvað gerist ef vatnið er komið á hjá mér fyrir kl. 15?

Ef heita vatnið verður komið í lag fyrir þann tíma þá mun það ekki verða tekið af aftur nema óvæntar uppákomur verði.

Hvað ef mér finnst vera lágur þrýstingur á vatninu eftir framkvæmdina?

Það getur tekið einhvern tíma að ná fullum þrýstingi aftur.

Hvað ef heita vatnið er ekki komið á kl. 15:00?

Við biðjum ykkur um að sýna því skilning og þolinmæði. Við uppfærum hér á síðunni eftir því sem fram vindur.

Þarf að slökkva á innanhúskerfum og snjóbræðslu?

Þar sem slík kerfi eru mörg og misjöfn getum við ekki svarað þessu almennt. Best er að hafa samband við pípara eða söluaðila kerfisins til að fá leiðbeiningar.

--------------------------------------------------------------------------

Update at 15:10: The planned repair is completed, and the water has been turned back on in Kjalarnes and Esjumelar. Some leaks have appeared, which are being further investigated.

There will be no hot water in Kjalarnes from 9:00 to 4:00 p.m. on April 23rd.

The repair was scheduled well in advance. Residents and businesses have been notified by email and text messages.

It is important to turn off the hot water taps to prevent accidents and damage when the water returns.

We remind homeowners to check their inhouse heating systems. It's good to keep the windows closed during this time to retain heat indoors.

When the water is restored after the shutdown, leaks may occur from the extensive piping system. In such cases, it is important to report them immediately so they can be addressed promptly.

Frequently Asked Questions and Answers regarding the closure:

Do you need to turn off all the water?

We understand that it's inconvenient for residents and businesses to be without hot water, but unfortunately, it's necessary for such a large project.

What if the hot water is restored before 3:00 p.m.?

If hot water is restored before that time, it will not be turned off again unless unexpected issues arise.

What if I experience low water pressure after the work is done?

It may take some time to restore full pressure.

What if hot water isn't restored by 3:00 p.m.?

We ask for your understanding and patience. We will update this page as progress is made.

Do I need to turn off the inhouse system and snow melting system?

Since these systems vary widely, we cannot provide a general answer. It's best to contact plumbers or the system's vendors for guidance.

Hvernig getum við aðstoðað þig?