- .
Veitur tengja nýja kaldavatnslögn

Um verkefnið: Vegna tengingar á kaldavatnslögn á svæðinu vinna Veitur að framkvæmdum við Frakkarstíg.
Á meðan á þverun stendur verður lokað fyrir umferð niður Frakkarstíg að Skúlagötu. Aðgangur að bílakjallara frá Skúlagötu verður þó áfram tryggður.
Hjáleið verður um Lindargötu, á milli Vatnsstígs og Frakkarstígs. Lindargata verður tímabundið gerð að tvístefnugötu og verður því óheimilt að leggja ökutækjum á þessum kafla Lindargötu.
Á meðan á framkvæmdum stendur verður lögð sérstök áhersla á öryggi vegfarenda og starfsfólks.
Vinnusvæði: Frakkarstígur
Tímaáætlun: 24. september – 1. október 2025
Samskipti: Atli Sigurðsson