.
Kaldavatnslaust er vegna bilunar
Vegna bilunar verður kaldavatnslaust við Suðurnesveg í dag þann 22. júlí frá kl 14:00. Sjá nánar á korti. Búast má við lægri þrýstingi á köldu vatni á meðan á viðgerðum stendur.
Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum.
Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.