
Í júlí var ný heitavatnshola boruð í Kaldárholti í Rangárþingi Ytra. Þar eru fyrir tvær vinnsluholur nýttar eru fyrir Rangárveitu.
Nýja holan (KH-39) er um 800 metra djúp, eða 300 metrum dýpri en holurnar sem fyrir voru. Niðurstöður fyrstu prófana á holunni benda til þess að hún sé á pari við holurnar sem fyrir eru. Þær afkasta, hvor um sig, um 50 lítrum á sekúndu af 65°C heitu vatni.
Hvað tekur nú við?
Frekari prófanir á holunni verða nú gerðar og ef niðurstöður lofa áfram góðu þá verður holan virkjuð. Það þýðir að dæla er sett ofan í holuna til að ná vatninu upp á stöðugan og öruggan máta.
Virkjun holunnar eykur strax rekstraröryggi í Rangárveitum þannig að ef eitthvað bilar í eldri holunum þá nýtist hún sem varaafl.
Til að hægt sé að tengja meira vatn frá Kaldárholti til íbúa á svæðinu þá þarf þó að auka flutningsgetuna með sverari lögnum og slíkt tekur lengri tíma.
Við hjá Veitum erum hæstánægð með árangurinn í Kaldárholti.
