Fjár­fest­ingar í innviðum

Þegar við erum tengd virkar samfélagið 

Daglegt líf byggir á tengingum sem við hugsum sjaldan um. Ljósin kvikna, vatnið rennur, heimili eru hlý og fráveita virkar. Þessir innviðir eru grunnur að lífsgæðum, öryggi og heilbrigðu samfélagi. 

Hlutverk Veitna er að tryggja að þessar tengingar virki á hverjum degi. 

Af hverju núna? 

Margir af þeim innviðum sem samfélagið treystir á í dag voru byggðir fyrir áratugum. Þeir hafa þjónað okkur vel en víða er komið að endurnýjun og styrking er nauðsynleg. 

  • aukinn aldur innviða - sérstaklega í rafmagns-, vatns- og fráveitukerfum
  • breytt loftslag - með meiri úrkomu, öflugri veðrum og auknu álagi
  • vaxandi samfélag - sem gerir meiri kröfur til afkasta og öryggis kerfanna

Þessar breytingar kalla á markvissar og ábyrgðarfullar fjárfestingar.  Það þarf að fyrirbyggja vandamál í stað þess að vera í viðbragði þegar þau koma upp. 

Hvað er verið að gera? 

Veitur vinna stöðugt að því að reka, viðhalda og endurnýja ómissandi innviði samfélagsins. Fjárfestingar beinast meðal annars að: 

  • Rafmagni  Styrking dreifikerfa, endurnýjun búnaðar og aukið afhendingaröryggi fyrir heimili og atvinnulíf.
  • Hita  Aukinn forði ásamt viðhaldi og styrkingu hitaveitukerfa til að tryggja áreiðanlega og sjálfbæra húshitun.
  • Hreinu vatni  Endurnýjun lagna og verndun vatnsbóla til að tryggja gæði og öryggi drykkjarvatns.
  • Fráveitu  Uppbygging og endurbætur sem draga úr líkum á leka, mengun og álagi á umhverfi.

Þetta eru framkvæmdir sem sjást lítið í daglegu lífi fólks en eru ómissandi innviðir sem tryggja dýrmæt lífsgæði.  

Hvað gerist ef ekkert er gert? 

Ef fjárfestingum í innviðum er frestað getur það haft víðtæk áhrif: 

  • auknar líkur á bilunum og truflunum,
  • hærri kostnaður síðar vegna bráðaviðgerða,
  • meiri áhætta fyrir umhverfi og heilbrigði,
  • minna öryggi í þjónustu sem samfélagið reiðir sig á.

Reynslan sýnir að það er bæði hagkvæmara og ábyrgara að viðhalda og endurnýja kerfin í tíma en að bregðast við þegar vandamál hafa þegar komið upp. 

Þegar við erum tengd virkar samfélagið. 

Það er ábyrgð Veitna að sjá til þess að þessar tengingar haldist sterkar – nú og til framtíðar. 

Hvernig getum við aðstoðað þig?