Lang­holts­vegur nærri Skeið­ar­vogi, Reykjavík

- .

Veitur endurnýja hitaveitu og rafveitulagnir

Um verkefnið: Verkefnið felst í því að endurnýja hitaveitu og rafveitu frá Langholtsvegi 120 yfir Skeiðarvog. Skipta þarf út gömlum lögnum sem hafa bilað óæskilega oft og í staðinn skal leggja lagnir sem eru öruggari.

Í framkvæmdinni þarf að þvera gatnamót Langholtsvegs við Skeiðarvog. Hjáleiðir verða settar upp og götulokanir verða á meðan þeirri vinnu stendur. Að öðru leiti er framkvæmdin að mestu í gangstétt en hjáleiðir verða settar upp fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks.

Uppfært 12.5.2025: Ný mynd sett inn efst á síðu til að sýna allt vinnusvæðið með þeirri endurnýjun sem bætt var við. Eldri myndir voru teknar út. Athugið að aðgengi gangandi og hjólandi verður tryggt allan tímann og gangstéttum ekki lokað samtímis báðu megin götunnar á sama svæði.
Uppfært 8.5.2025:
Þann 19. maí hefst vinna við endurnýjun rafstrengja í gangstétt við Langholtsveg. Þetta er viðbót við það sem þegar var tilkynnt. Unnið verður frá Álfheimum og að Langholtsvegi til móts við númer 124 (hinu megin götunnar). Heimtaugar verða endurnýjaðar að lóðarmörkum á hluta leiðarinnar. Þessi hluti verksins stendur fram í lok júlí. Ef það þarf að þvera innkeyrslur þá verður aðgengi íbúa tryggt mest allan tímann og eingöngu örfáar klukkustundir sem þær eru mögulega lokaðar vegna vinnu.
Þegar vinna er hafin mun koma í ljós hvort þvera þurfi götuna, en það væri stutt lokun eða þrenging.

Vinnusvæði: Í gangstétt við Langholtsveg og Skeiðarvog og að hluta í götunum frá Skeiðarvogi að Álfheimum.

Tímaáætlun: Maí til september 2025

Verkefnastjórar Veitna: Auður Guðríður (við gatnamótin) og Finnbogi Karlsson (rafmagn í gangstétt að Álfheimum)

Samskipti vegna framkvæmda: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna

Hvernig getum við aðstoðað þig?