- .
Veitur endurnýja lagnir til að bæta afhendingaröryggi
Um verkefnið: Verið að tengja hitaveitu til að bæta afhendingaröryggi á heitu vatni. Þessi tenging er mikilvægur þáttur í hringtengingu hitaveitu og einnig stór þáttur í getu okkar til að afleggja hættulegan manngengan stokk í Lönguhlíð.
Innkeyrsla að bílakjallara við Hörgshlíð 2 mun lokast í örfáa daga á meðan lögn er komið fyrir í skurðinum. Möl verður sett á yfirborð þar til endanlega er gengið frá yfirborði að framkvæmd lokinni.
Vinnusvæði: Í gangstétt við gatnamót Hörgshlíðar og Litluhlíðar.
Tímaáætlun: Frá miðjum maí fram í ágúst
Verkefnastjóri: Hákon Róbert Jónsson
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna