- .
Veitur endurnýja vatns- og fráveitulagnir
Uppfært 12.8. 2025: Á meðan fyrsta áfanga stendur verður tryggt að gatnamót Rauðalækjar við annars vegar Bugðulæk og hins vegar Brekkulæk verða ekki lokuð samtímis. Verktaki mun loka skurðum um leið og mögulegt er og ganga frá yfirborði til bráðabirgða.
Uppfært 8.8.: Vinna hefst 11. ágúst á gatnamótum Bugðulækjar og Rauðalækjar. Bugðulækur verður tvístefna á meðan og ekki verður hægt að leggja bílum í götunni.
Innkeyrslur lokast í Rauðalæk smám saman frá númer 20 og 25, en verktakinn mun byrja að taka yfirborðið svo að öll geti fært bíla og annað úr innkeyrslum áður en skurðir eru opnaðir.
Uppfært 16.7.2025: Verktakinn mun koma sér fyrir fljótlega, stilla upp vinnubúðum og hefjast framkvæmdir af fullum krafti 7. ágúst.
Uppfært 27.6.2025: Framkvæmdin þurfti að fara í annað útboð þar sem samningar náðust ekki. Ástæðan var sú að Veitur vilja tryggja að ekki sé unnið yfir háveturinn nema veðurfar sé þannig að lagnavinna sé möguleg og framgangur sé ásættanlegur. Það þýðir í raun að Veitur vilja alls ekki hafa opna skurði þegar ekki er hægt að vinna í lengri tíma vegna veðurs. Tryggja þarf að skurðum sé lokað og aðgengi tryggt á meðan hlé er gert á vinnu. Gert er ráð fyrir að samningar verði kláraðir á næstu dögum eftir seinna útboðið.
Um verkefnið: Veitur munu hefja endurnýjun vatns- og fráveitulagna í Rauðalæk. Núverandi lagnir eru frá árinu 1955 og því komnar til ára sinna. Ekki er þörf á að endurnýja hitaveitu- og raflagnir í götunni þar sem þær voru endurnýjaðar árið 1998.
Vatns- og fráveitulagnir liggja djúpt og neðarlega í jörðu, sem þýðir að skurðurinn verður bæði djúpur og breiður. Vegna þessa verður ekki unnt að aka framhjá framkvæmdarsvæðinu og verða hjáleiðir settar upp. Gangandi og hjólandi vegfarendur munu þó ávallt eiga greiða og örugga leið framhjá svæðinu. Sérstök áhersla verður lögð á öryggi allra vegfarenda sem og starfsfólks á svæðinu.
Við áætlum að verkið taki í heild sinni um hálft ár. Þegar lagnir hafa verið endurnýjaðar verður gengið frá yfirborði.
Athygli er vakin á því að heimlagnir fráveitu innan lóðar eru ávallt í eigu húseigenda. Þegar eigendur endurnýja fráveitulagnir ber þeim skylda til að hafa tvær aðskildar lagnir fyrir regnvatn og skólp. Nánari upplýsingar má finna hér.
Veitur endurnýja lagnir til að tryggja öllum íbúum nauðsynlega innviði og lífsgæði til framtíðar.
Framkvæmdasvæðið er í Rauðalæk og nær frá Laugalæk að Dalbraut, en verkinu er skipt niður í smærri áfanga til að takmarka umfang vinnusvæðið hverju sinni og draga úr áhrifum á umferð og nærliggjandi svæði.
Áfangi 1: Verður götulokun frá Bugðulæk og að Dalbraut. Það verður unnið í minni áföngum til að takmarka lokun hverju sinni.
Áfangi 2: Verður unninn árið 2026 með götulokun í Rauðalæk frá Bugðulæk að Laugalæk.
Vinnusvæði: Rauðalækur
2025: Frá Bugðulæk að Dalbraut. Unnið verður í minni áföngum hverju sinni.
2026: Frá Bugðulæk að Laugalæk. Unnið verður í minni áföngum hverju sinni.
Tímaáætun fyrri áfanga: Ágúst til janúar 2026
Verkefnastjóri Veitna: Auður Guðríður Hafliðadóttir
Samskipti vegna framkvæmda: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna
-----------------------------------
Algengar spurningar
Af hverju er verið að fara í svona stóra framkvæmd?
Lagnir eru komnar á tíma fyrir endurnýjun og til að þurfa einungis að koma einu sinni og grafa götuna upp þá er allt tekið á sama tíma.
Hvað verður skurðurinn stór?
Þar sem fráveitan liggur djúpt í jörðu þarf skurðurinn að vera djúpur og það þýðir að vinnusvæðið verður einnig breitt til að tryggja öryggi við skurðinn. Gera verður ráð fyrir að ekki sé hægt að aka bíl framhjá vinnusvæðinu.
Verður öll gatan tekin í einu?
Nei. Verkinu verður áfangaskipt og það verður kynnt fyrir íbúum þegar hönnun og verkáætlun eru tilbúnar.
Verður gatan malbikuð í áföngum?
Vel verður gengið frá yfirborði jafnóðum, en endanlegur yfirborðsfrágangur verður unninn þegar framkvæmd lýkur í hvorum áfanga fyrir sig.
Nú eru nokkur ár síðan átti að malbika Rauðalæk, af hverju hefur þetta tafist?
Ástæðurnar eru margvíslegar og liggja bæði hjá Veitum og Reykjavíkurborg. Það er miður að svona hafi farið og íbúar beðnir velvirðingar á töfunum.