.
Veitur leggja flutningsæð hitaveitu

Suðuræðin er flutningsæð hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu og tengir stóran hluta íbúa við heitt vatn frá virkunum. Undanfarin ár hafa Veitur lagt sambærilega lögn nærri henni til að tryggja heitt vatn fyrir íbúa til framtíðar.
Sumarið 2024 var hluti nýju lagnarinnar tekinn í notkun með víðtæku heitavatnsleysi. Nú eru framkvæmdir hafnar við lagningu næsta hluta hennar, frá Suðurlandsvegi að gatnamótum við Þingtorg í Norðlingaholti. Framkvæmdasvæðið er innan Norðlingaholts meðfram Norðlingabraut.
Á meðan vinnu stendur verður einstefna á Norðlingabraut frá Bjallavaði og framhjá Ferjuvaði. Það hefur ekki áhrif á ferðir strætó í hverfinu.
Það er ekki gert ráð fyrir götulokunum á meðan vinnu stendur og hjáleiðir verða settar upp fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur það sem það á við.
Göngubrú yfir Breiðholtsbraut sem tengir Norðlingaholt við Árbæinn verður opin allan framkvæmdatímann til að trygga öryggi vegfarenda á milli hverfa.
Öryggi vegfarenda og starfsfólks eru í fyrirrúmi og við viljum fá að vita af því strax ef við getum gert betur.
Í þessum áfanga er ekki gert ráð fyrir að loka þurfi tímabundið fyrir heita vatnið, lögnin verður tengd síðar við kerfið í heild sinni.
Tvöföldun Suðuræðar er mikilvæg framkvæmd til að tryggja afhendingaröryggi heits vatns á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins.