.
Framleiðslugeta kyndistöðvar aukin
*English below*
Í sumar er unnið að uppfærslu á búnaði í kyndistöð hitaveitunnar í Bláskógum þriðjudaginn 3. júní klukkan 10:00 til 18:00. Um 85% íbúa í Hveragerði fá heita vatnið frá kyndistöðinni á tvöföldu kerfi.
Með uppfærslunni verður hægt að auka framleiðslugetu kyndistöðvarinnar úr 13 MW í 23MW sem er umtalsverð viðbót til að bæta afhendingaröryggi til húshitunar í Hveragerði.
Veitur telja mikilvægt að ná aukningunni fyrir veturinn til viðbótar við dælustöðvar sem verið er að bæta við í bænum.
Í byrjun júní þarf að loka fyrir heita vatnið hjá öllum notendum á tvöfalda kerfinu í Hveragerði á meðan unnið er í kyndistöðinni. Slíkt er ekki hægt að gera á meðan heita vatnið rennur um búnaðinn. Í haust þegar nýr búnaður verður tengdur þarf síðan aftur að loka fyrir heita vatnið. Báðar lokanir verða um 8 klukkustundir yfir daginn.
----
This summer, equipment at the district heating plant in Bláskógar is being upgraded on Tuesday, June 3rd, from 10:00 to 18:00. Approximately 85% of residents in Hveragerði receive hot water from this plant through a dual-pipe system.
The upgrade will increase the plant’s production capacity from 13 MW to 23 MW — a significant boost that will improve the reliability of house heating in Hveragerði.
Veitur considers it important to complete this capacity increase before winter, in addition to new pumping stations currently being added in the town.
In early June, the hot water supply will need to be shut off for all users on the dual-pipe system in Hveragerði while work is carried out at the heating plant. This work cannot be done while hot water is flowing through the equipment. A second outage will be needed in the fall when the new equipment is connected. Both shutdowns are expected to last around 8 hours during the day.