Fálka­gata, Reykjavík

- .

Uppsetning brunahana

Uppfært 29.1.2025 : Við uppsetningu á brunahana við Fálkagötu og Tómasarhaga kom í ljós bilun á dreifilögn á köldu vatni. Í ljósi þessa þarf að endurnýja lögn við gatnamót Fálkagötu, því til viðbótar er verið að afhenda nýja heimlögn við Tómasarhaga. Til að minnka allt rask til lengri tíma verða þessi verkefni unnin samhliða. Veitur munu þurfa að taka kalt vatn af öllu svæðinu samtímis og verður það auglýst sérstaklega þegar dagsetning og tímasetning liggur fyrir. Framkvæmd mun því lengjast til 10.febrúar

Um verkefnið: Vegna uppsetningar brunahana á svæðinu vinna Veitur að framkvæmdum sem miða að því að tryggja rekstraröryggi og bæta aðgengi að vatni. Verkið er unnið í góðu samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, þar sem brunahanar eru staðsettir með tilliti til nægs vatnsflæðis og öflugra lagna. Sjá nánar hér

Vegna framkvæmda við uppsetningu brunahana verður takmörkuð umferð við Fálkagötu. Vinna við gatnamótin við Fálkagötu 15 hefst föstudaginn 23.janúar og áætlaða að götuþrengin við Fálkagötu 14 verði um miðja vikuna 26 - 30.janúar Hjáleiðir verða settar upp fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

Á meðan á framkvæmdum stendur verður lögð sérstök áhersla á öryggi vegfarenda og starfsfólks á svæðinu.

Veitur setja upp brunahana til að tryggja rekstraröryggi og öryggi íbúa til framtíðar.

Vinnusvæði: Fálkagata

Tímaáætlun: 23.janúar - 10.febrúar 2026

Hvernig getum við aðstoðað þig?