- .
Veitur endurnýja dælu fyrir hitaveituna á svæðinu
Uppfært 20.8.2026 kl 21:30: Það er búið hleypa á í Austurveitu og kerfið að keyra sig upp hægt og rólega. Það ættu allir að vera komnir með vatn fyrir miðnætti
Uppfært 20.8.2026: Vinna í Austurveitu gengur vel og áætlanir gera ráð fyrir því að verki ljúki á tilsettum tíma.
Seinni partinn í dag og í kvöld má búast við vatnsleysi um tíma þegar ný dæla verður tengd við kerfið.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun ættu allir notendur að vera komnir með heitt vatn í kvöld.
Eftir að vatn kemst aftur á getur tekið nokkurn tíma að ná upp eðlilegu hitastigi.
Áfram er mikilvægt að fara sparlega með heita vatnið meðan á framkvæmdum stendur.
Veitur endurnýja búnaðinn til að bæta afhendingaröryggi til allra fyrir veturinn.
Uppfært 20.8.2026 : Fram eftir degi verður lítið heitt vatn til skiptana í allri Austurveitu og því gætu notendur orðið varir við skert framboð. Áætlað er að ljúka vinnu í dag og gangsetja borholu síðdegis. Gangi allt að óskum gerum við ráð fyrir að heitt vatn verði komið á hjá öllum í kvöld.
Áfram er mikilvægt að fara sparlega með heita vatnið meðan á framkvæmdum stendur.
Veitur endurnýja búnaðinn til að bæta afhendingaröryggi til allra fyrir veturinn.
Uppfært 18.8.2026: Verkið við Gljúfurárholt gengur samkvæmt áætlun.
Við höfum þó þurft að lækka þrýsting á heita vatninu þar sem vatnsstaða í borholum hefur lækkað meira en gert var ráð fyrir. Af þeim sökum má gera ráð fyrir því að einhverjir verðir varir við skort á heitu vatni.
Áfram er mikilvægt að fara sparlega með heita vatnið meðan á framkvæmdum stendur.
Veitur endurnýja búnaðinn til að bæta afhendingaröryggi til allra fyrir veturinn.
Austurveita er hitaveitan sem þjónar hluta Hveragerðis og nágrennis. Hún fær heita vatnið frá borholu í Gljúfurárholti. Í holunni er dæla sem dælir heita vatninu upp til að hægt sé að nýta það til húshitunar. Dæluna þarf að endurnýja og setja öflugri dælu í holuna, enda ljóst að núverandi búnaður dugar ekki til að anna eftirspurn í veitunni á kaldasta tíma ársins.
Dagana 17.-20. ágúst verður nýrri dælu komið fyrir í Gljúfurárholti og þá þarf að taka þá gömlu úr holunni. Slíkt er eingöngu hægt með stöðvun á dælingu heita vatnsins allan tímann.
Þessa daga verður vatn á veitunni, en það er bæði minna en alla jafna og líka kaldara, eða um 55°C. Það þýðir að meira vatn þarf til að hita húsin að hitastiginu sem fólk á að venjast.
Veitur biðla til íbúa sem tengd eru Austurveitu að fara sérstaklega vel með vatnið frá morgni mánudagsins 17. ágúst og fram á kvöld fimmtudaginn 20. ágúst.
Stórnotendur munu einnig draga verulega úr notkun þessa daga.
Með sameiginlegu átaki í því að draga mikið úr notkun er von okkar að hægt sé að tryggja vatn á allt svæðið án skerðinga eða lokana.
Framkvæmdin er mikilvæg til að tryggja heitt vatn á Austurveitu næsta vetur.