- .
Uppsetning brunahana

Um verkefnið: Vegna uppsetningar brunahana á svæðinu vinna Veitur að framkvæmdum sem miða að því að tryggja rekstraröryggi og bæta aðgengi að vatni. Verkið er unnið í góðu samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, þar sem brunahanar eru staðsettir með tilliti til nægs vatnsflæðis og öflugra lagna. Sjá nánar hér
Vegna framkvæmda við uppsetningu brunahana verður lokað fyrir umferð milli Klettagarða 19 og 25. Hjáleiðir verða settar upp fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Á meðan á framkvæmdum stendur verður lögð sérstök áhersla á öryggi vegfarenda og starfsfólks á svæðinu.
Veitur setja upp brunahana til að tryggja rekstraröryggi og öryggi íbúa til framtíðar.
Vinnusvæði: Klettagarðar
Tímaáætlun: 15 - 23 janúar 2026
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna