Heita­vatns­laust  frá kl. 22.00 þann 8. nóvember í Garðabæ, Álfta­nesi, Hafnar­firði, Kópa­vogi og  Breið­holti. 

- .

Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.

Kl. 10:45 Lekar hafa komið upp í hitaveitukerfinu á örfáum stöðum á svæðinu og unnið er að viðgerð á þeim. Á meðan getur verið að húsnæði í næsta nágrenni séu heitavatnslaus. Það er tímabundið á meðan á viðgerð stendur.
Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp í veitukerfinu. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.

  • Kl. 06:45 Áhleypingu er lokið og allsstaðar kominn eðlilegur þrýstingur á heita vatnið.
  • Kl. 03:00 Öll vinna hefur staðist áætlun og áhleyping er hafin. Sumir hverjir eru komnir með heitt vatn nú þegar en fullur þrýstingur ætti að verða kominn á allsstaðar kl. 07:00

Heitavatnslaust  frá kl. 22.00 þann 8. nóvember í Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði, Kópavogi og  Breiðholti.

Vegna nauðsynlegrar viðgerðar á Suðuræð verður heitavatnslaust í Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði, Kópavogi og Breiðholti frá kl. 22:00 miðvikudaginn 8. nóvember. Stefnt er að því að heitu vatni verði aftur hleypt á um fimm tímum síðar og við búumst við að fullur þrýstingur verði kominn aftur á hjá öllum íbúum á svæðinu um kl. 7:00 fimmtudagsmorguninn 9. nóvember. Sjá kort.

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.

Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni. Eins bendum við húseigendum á að huga að innanhússkerfum. Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst. Við munum upplýsa um gang mála á þessari síðu.

Eftirfarandi götur í Kópavogi verða ekki fyrir áhrifum af lokuninni: Hluti Urðarhvafs og Ögurhvarfs, Dimmuhvarf, Fornahvarf, Melahvarf, Grundarhvarf, Brekkuhvarf, Breiðahvarf, Faxahvarf, Fálkahvarf, Funahvarf, Fellahvarf, Glæsihvarf, Kríunesvegur, Elliðahvammsvegur, Vatnsendi, Vatnsendablettur, Fagranes, Fróðaþing, Hólmaþing og stór hluti Dalaþings.

English below

Due to repairs in the district heating system all of Garðabær, Álftanes, Hafnarfjörður, Kópavogur and Breiðholt in Reykjavík will have no hot water from 22.00 PM Wednesday 8. November for about five hours. At 7.00 AM Thursday morning 9. November, all of the  affected area should have full hot water again.
See map of the affected area. 

It is important to turn off all hot water taps to reduce the risk of an accident or damage when the water comes on again.
When water flows through a large district heating system again after a shutdown, it is normal that leaks can  occur. In such instances it is important to let us know if you find evidence of a hot water leak so we can respond to this.

Hvernig getum við aðstoðað þig?