.
Viðgerð á kaldavatnslögn
Um verkefnið: Veitur vinna að viðgerðum á kaldavatnslögn vegna leka.
Framkvæmdir fara fram við Holtsgötu 18. Á meðan á framkvæmdum stendur verður Holtsgata þveruð og verður því lokað fyrir umferð í gegn og breytist í botnlanga.
Hjáleiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verða settar upp þar sem við á og lögð verður sérstök áhersla á öryggi allra vegfarenda og starfsfólks á svæðinu.
Að framkvæmdum loknum verður gengið frá yfirborði svæðisins.
Vinnusvæði: Holtsgata
Tímaáætlun: 3. júní