Þver­holt, Reykjavík

- .

Veitur endurnýja kaldavatnslagnir

Uppfært 10.6.2025: Verkið tekur lengri tíma en áætlað var. Ný áætlun gerir ráð fyrir að því ljúki undir lok júní.
Um verkefnið
: Veitur eru að leggja nýja kaldavatnslögn sem mun auka dreifigetu og bæta vatnsöryggi á svæðinu til framtíðar.

Framkvæmdir fara fram við Þverholt 18. Á meðan á framkvæmdum stendur verður Þverholt lokað fyrir umferð í gegn og breytist í botnlanga í báðar áttir.

Hjáleiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verða settar upp þar sem við á og lögð verður sérstök áhersla á öryggi allra vegfarenda og starfsfólks á svæðinu.

Að framkvæmdum loknum verður gengið frá yfirborði svæðisins.

Vinnusvæði: Þverholt

Tímaáætlun: 26. maí til 3. júní

Hvernig getum við aðstoðað þig?