.
Lífríkið nýtur vafans

Uppfært 14.8.
Prófunum á bornum og hringrás fyrir leðjuna sem í upphafi er borað með, eða niður á allt að 300 metrum, er lokið og borun á nýrri holu hefst í dag. Þegar borað er með leðju er ekkert skolvatn sem fer frá bornum, heldur er leðjan endurnýtt.
Samhliða borun með leðju, er verið að betrumbæta svarfþró og lagnir til að endurnýta hluta vatnsins sem borinn notar og koma umframmagni aftur niður í eldri holur í Skammadal.
Verktaki á vegum Veitna er þessa dagana að undirbúa veg og borplön fyrir næstu holur.

Uppfært 6.8.2026
Borinn er kominn á næsta borstað nær Skammadalslæk og samkvæmt áætlun verður byrjað að bora þar í lok næstu viku. Fyrst um sinn verður borað með leðju á lokuðu hringrásarkerfi og því verður ekkert skolvatn sem fer frá bornum.
Samtímis er unnið að því að betrumbæta svarfþróna sem verður nýtt áfram til að fanga skolvatnið frá bornum áður en því er veitt aftur í eldri borholur í Skammadal.
Uppfært 31.7.2026
Borun fyrstu borholunnar af fimm í Skammadal er nú lokið. Holan var boruð niður á 774 metra dýpi og er undirbúningur hafinn að flutningi bortækja að næsta borstæði sem er sunnar í dalnum.
Veitur munu ganga frá borholunni með hefðbundnum hætti. Jafnframt er fyrirhugað að nýta hana til að dæla skolvatni frá borun næstu holu aftur niður í jarðlögin. Eldri borhola á svæðinu, HS-21, verður áfram nýtt í sama tilgangi.
Áfram verður notast við settjörn til að skilja grófasta efni frá skolvatninu áður en því er dælt aftur niður í jarðlögin. Þá er fyrirhugað að klæða tjörnina með þéttum dúk til að koma í veg fyrir að skolvatn leki úr henni nærliggjandi umhverfi.
Rafstrengur og vatnsveitulagnir verða lagðar að nýju borstæði. Frágangur þeirra verður með þeim hætti að þær valdi ekki hættu eða truflun á umferð um svæðið.
Gert er ráð fyrir að flutningar bortækja hefjist af fullu vikuna 3.-9. ágúst og að borun næstu holu hefjist vikuna 10.-16. ágúst. Látið verður vita áður en boranir hefjast að nýju.
Framangreindar framkvæmdir verða unnar í samræmi við útgefið framkvæmdaleyfi frá bæjarstjórn Mosfellsbæjar auk fyrirliggjandi vöktunar- og viðbragðsáætlun.
Framkvæmdirnar eru mikilvægur liður í að tryggja öruggt framboð af heitu vatni til framtíðar fyrir ört vaxandi samfélag á þjónustusvæði Veitna.
Uppfært 27.7.2026:
Líkt og áður hefur komið fram stöðvuðu Veitur boranir eftir heitu vatni í Skammadal þann 27. maí sl. Boranir hófust á ný þann 24. júlí eftir að öll tilskilin leyfi lágu fyrir og ganga framkvæmdir samkvæmt áætlun.
Skolvatnið sem fellur til við borun holunnar rennur eftir lokuðu kerfi í svokallaða svarfþró á framkvæmdasvæðinu. Þaðan er vatninu dælt aftur ofan í jörðina um eldri borholu, HS-24.
Ekkert skolvatn eða svarf frá boruninni rennur í Skammadalslæk eða Varmá.
Jafnframt er notaður sérstakur mælibúnaður sem fylgist með því að svarf berist ekki út fyrir framkvæmdasvæðið.
Litur skolvökvans getur breyst
Þeir sem hafa fylgst með framkvæmdunum kunna að hafa tekið eftir því að litur skolvökvans hefur verið breytilegur síðustu daga.
Það skýrist af þeim jarðlögum sem verið er að bora í gegnum. Yfirleitt er skolvökvinn í mismunandi gráum tónum en þegar borað er í svokölluð rauð millilög getur hann tekið á sig rauðleitan lit. Rauðu millilögin eru steingerður jarðvegur á milli hraunlaga og eru vel þekkt úr íslenskri jarðfræði. Þau sem borið hafa hinn fallega Hengifossi í norðanverðum Fljótsdal augum þekkja þessi rauðu millilög.
Litur skolvökvans segir því til um þau jarðlög sem verið er að bora í en breytir ekki því að skolvökvinn er meðhöndlaður innan framkvæmdasvæðisins og dælt aftur niður í jörðina.
Borinn er nú kominn á um 730 metra dýpi og á því um 800 metra eftir til að fullklára þessa mikilvægu vinnsluholu fyrir heitavatnsöflun Veitna á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal í Mosfellsbæ.
Framkvæmdirnar eru mikilvægur liður í að tryggja öruggt framboð af heitu vatni til framtíðar fyrir ört vaxandi samfélag á þjónustusvæði Veitna.
Uppfært 24.7.2026:
Líkt og áður hefur komið fram stöðvuðu Veitur boranir eftir heitu vatni í Skammadal þann 27. maí sl. Boranir hófust á ný rétt eftir hádegi í dag eftir að öll tilskilin leyfi lágu fyrir og ganga framkvæmdir samkvæmt áætlun.
Skolvatni frá bornum er veitt aftur ofan í jörðina um eldri borholu og þannig komið í veg fyrir að gruggugt vatn renni í Skammadalslæk og Varmá. Jafnframt er notuð sérstök svarfþró og mælibúnaður sem tryggir að svarf berist ekki í ána.
Borinn er nú kominn á um 660 metra dýpi og á því um 840 metra eftir til að fullklára þessa mikilvægu vinnsluholu fyrir heitavatnsöflun Veitna á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal í Mosfellsbæ.
Framkvæmdirnar eru mikilvægur liður í að tryggja öruggt framboð af heitu vatni til framtíðar fyrir ört vaxandi samfélag á þjónustusvæði Veitna.
Hér má sjá ítarleg gögn um málið.
Þriðjudaginn 21. júlí buðu Mosfellsbær og Veitur upp á samtal um framkvæmdina á Bókasafni Mosfellsbæjar.
Uppfært 20.7.2026:
Líkt og fram hefur komið stöðvuðu Veitur boranir eftir heitu vatni í Skammadal þann 27. maí s.l. Veitur hafa nú fengið öll tilskilin leyfi til áframhaldandi borunar og er stefnt að því að hefja boranir að nýju miðvikudaginn 22. júlí n.k.
Skolvatninu frá bornum verður veitt aftur ofan í jörðina í gamla borholu og þannig er komið í veg fyrir að gruggugt vatn renni í Skammadalslæk og Varmá. Við munum þurfa að nota svokallaða svarfþró, en settir verða upp sérstakir mælar sem tryggja að ekki renni svarf í ánna.
Borinn er nú kominn á rúmlega 600 metra dýpi og á því um 900 metrar eftir til að fullklára þessa mikilvægu holu fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu, þar með talið í Mosfellsbæ.
Hér má sjá ítarleg gögn um málið.
------------------------------------
Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fái að njóta vafans.
Óháðir sérfræðingar verða fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa.
Við skiljum vel að ásýnd Varmár og umræðan undanfarna daga veki áhyggjur hjá íbúum og þeim sem tengjast svæðinu sterkum böndum. Við tökum það mjög alvarlega.
Við vinnum náið með eftirlitsaðilum og sérfræðingum að því að meta umhverfisáhrifin og tryggja að lífríkið njóti vafans. Við munum halda áfram að upplýsa um stöðuna hér á síðunni.
Uppfært 01.07
Unnið er að lausnum í samstarfi við leyfisveitendur og Mosfellsbæ. Við munum upplýsa hér þegar dagsetning liggur fyrir um hvenær boranir hefjast aftur.
Frétt frá íbúafundi 22.06
Íbúafundur í Mosfellsbæ
Uppfært 18.06
Veitur vinna áfram að þróun lausna til að koma í veg fyrir að grugg fari í árfarveginn þegar byrjað verður að bora aftur eftir heitu vatni. Verið er að kanna hvort skila megi borvatninu ofan í óvirka borholu skammt hjá og unnið með sérfræðingum að því hvernig gruggið verður best hreinsað úr vatninu.
Veitur hafa unnið með sérfræðingum og eftirlitsaðilum að mati á umhverfisáhrifum framkvæmdanna frá því að við stöðvuðum framkvæmdir 27. maí. Sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun og Verkís hafa farið í frumathuganir á stöðu lífríkis Skammadalslækjar og Varmár. Einnig hefur VSÓ, sem fer með umhverfiseftirlit framkvæmdarinnar fyrir Veitur fylgst áfram með svæðinu og tekið sýni til efnagreininga.
Helstu niðurstöður athugana sem nú liggja fyrir eru:
Beðið er niðurstaðna ítarlegri athugana Hafrannsóknastofnunar á ástandi fiskistofna og gróðurs í ánni. Á grundvelli þeirra niðurstaðna verður tekin afstaða til frekari rannsókna og vöktunar á lífríki árinnar og umhverfi hennar, í samræmi við ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og annarra sérfræðinga eftir því sem tilefni gefur til.
Íbúafundur Veitna í samvinnu við Mosfellsbæ verður haldinn í Hlégarði mánudaginn 22. júní kl. 19.30 þar sem farið verður yfir stöðu mála og næstu skref. Verið öll velkomin. Kaffi og kleinur á boðstólnum.
Uppfært 11.6.
Veitur vinna áfram með sérfræðingum og eftirlitsaðilum að mati á áhrifum framkvæmdanna í Skammadal og þróun lausna sem koma í veg fyrir að fínefni berist í Varmá. Borframkvæmdir verða ekki hafnar að nýju fyrr en fullnægjandi lausnir liggja fyrir.
Íbúafundur Veitna og Mosfellsbæjar verður haldinn í Hlégarði mánudaginn 22. júní kl. 19.30 þar sem farið verður yfir stöðu mála og næstu skref.
Uppfært 5.6. kl. 14.30
Íbúafundur Veitna í samvinnu við Mosfellsbæ verður haldinn í Hlégarði mánudaginn 22. júní kl. 19.30. Þar munu Veitur ásamt fleirum svara spurningum íbúa og ræða framhaldið.

Uppfært 4.6. kl. 16.30
Íbúafundur Veitna í samstarfi við Mosfellsbæ er í undirbúningi þar sem Veitur munu eiga samtal við íbúa um borframkvæmdir í Skammadal og lausnir til að koma í veg fyrir að grugg berist í ána. Fundurinn verður haldinn í Hlégarði mánudaginn 22. júní kl. 19.30-21.00.
Uppfært 3.6. kl. 15.40
Við eigum von á niðurstöðum mats óháðra sérfræðinga sem hafa metið lífríkið í og við Varmá fyrir helgi. Dagsetning og staðsetning á íbúafundi í Mosfellbæ verður auglýst á föstudag. Boranirnar eru hluti af umfangsmestu jarðhitaleit Veitna í um 50 ár til að auka forða fyrir vaxandi samfélag til að tryggja að öll fái heitt vatn til framtíðar.
Uppfært 2.6. kl. 15.40
Veitur halda áfram að leita lausna fyrir borvatnið sem kemur þegar verið er að bora í Skammadal.
Uppfært 1.6. kl.16.00
Unnið er að lausnum til að meðal annars fanga fínefnin úr borvatninu í Skammadal og koma í veg fyrir að þau renni í Varmá. Það er mikilvægt til að hægt sé að halda áfram að bora eftir heitu vatni á staðnum fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Veitur munu skilja við Skammadal að framkvæmdum þar loknum, eins og hann var áður, þ.á m. verður fyllt í svarfþrær á svæðinu.
Veitur halda áfram að leita lausna fyrir borvatnið sem kemur þegar verið er að bora í Skammadal.
Uppfært 31.5. kl. 15.50
Prófanir sem gerðar hafa verið undanfarna daga við síun á borvatninu héldu áfram í dag. Fyrstu niðurstöður munu nýtast í áframhaldandi vinnu við að ná fínustu ögnunum úr borvatninu.
Uppfært 30.5. kl. 19.50
Í dag var unnið að áframhaldandi prófunum á lausnum til að ná fínefnunum úr borvatni í Skammadal, en ekki er verið að bora.
Uppfært 29.5. kl. 15.30
Við höldum áfram að finna lausnir á málinu og í dag hafa afmarkaðar, stýrðar prófanir í Skammadal komið ágætlega út. En þetta er einungis fyrsta skrefið í að ná fínustu ögnunum úr vatninu. Nánari greiningar á efnasamsetningu vatnsins eru í vinnslu, en þar skiptir einna mestu máli að fá niðurstöður í af hverju fínefnið hefur ekki botnfallið í svarfþrónni. Íbúafundur í Mosfellsbæ er í undirbúningi og verður auglýstur síðar.
Uppfært 28.5. kl.14.45:
Unnið er að mótvægisaðgerðum. Stýrðar tilraunir verða gerðar á svæðinu á morgun með síun á borvatninu. Vatnið sem notað er í það verður alfarið innan svæðis og hefur ekki áhrif á vatnið sem rennur af svæðinu. Fyrirhugað er að setja varnardúk í svarfþróna til að varna því að moldin úr henni berist með vatninu. Veitur munu ekki hefja borun fyrr en fulltryggt er að borvatnið sé tært áður en það fer af svæðinu.

Álafoss í Varmá í morgun.
Uppfært 27.5. kl. 17.15:
Veitur hafa í dag unnið áfram að aðgerðum vegna áhrifa frá borframkvæmdum í Skammadal á Varmá. Boranir voru stöðvaðar klukkan 9:20 í morgun á meðan unnið er að frekari úrbótum og mótvægisaðgerðum á svæðinu.
Unnið er með Umhverfis- og orkustofnun, viðkomandi Heilbrigðiseftirliti (HEF) og sérfræðingum VSÓ sem sinna vöktun og rannsóknum á lífríki Varmár. Verið er að setja upp endurskoðað aðgerða- og vöktunarplan sem felur meðal annars í sér auknar sýnatökur á vatni, borvökva og áhrifum á lífríki árinnar.
Sýni eru rannsökuð, meðal annars fínagnir í borvatninu til að meta hvernig þær hegða sér í vatni og hvers konar frekari hreinsunaraðgerðir geti skilað bestum árangri.
Samhliða þessu eru Veitur að meta fjölbreyttar tæknilegar lausnir til að draga enn frekar úr áhrifum framkvæmdanna á umhverfið.
Spurt og svarað
Af hverju var borun stöðvuð núna?
Við stöðvuðum borun þegar ljóst var að nýja svarfþróin virkaði ekki eins og við var búist. Fínasta efnið hefur ekki botnfallið eins og það ætti að gera og við því erum við að bregðast. Magn og hegðun fínustu agnanna er önnur en búist var við og áhrifin á m.a. Varmá meiri en áætlað hafði verið.
Hvað eru Veitur að gera til að vernda Varmá og lífríkið þar?
Óháðir sérfræðingar taka sýni úr vatninu og meta lífríkið í ánni og við hana, frá svæðinu þar sem vatnið frá bornum hefur runnið og niður að Varmárósum.
Sýni úr vatninu frá bornum eru tekin og send til rannsóknar til að meta hvaða aðgerðir eru mögulegar til að fínefnið berist ekki í læki og ár á svæðinu.
Af hverju hætta Veitur ekki alveg við borunina?
Boranir á Reykjum og í Skammadal eru hluti af umfangsmestu jarðhitaleit okkar í 50 ár. Tryggja þarf heitt vatn fyrir vaxandi samfélag á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar ásamt ráðgjöfum telja að lághitasvæðið á Reykjum og nágrenni geti gefið meira heitt vatn en nýtt er í dag.
Af hverju kemur vatn frá borunum?
Þegar borað er eftir heitu vatni er notað kalt vatn til að hreinsa upp úr holunni bergmulninginn sem myndast við borun. Það er gert til að hann stífli ekki heitavatnsæðar sem nýta á. Vatnið fer síðan í gengum svarfþrær þar sem borsvarfið (bergmulningurinn) fellur til botns áður en vatninu er veitt áfram. Í Skammadal hefur fíngerðasta efnið ekki fallið til botns og því borist niður árfarveginn.
Var farið eftir reglum og leyfum?
Framkvæmdirnar eru unnar í samráði við eftirlitsaðila og samkvæmt þeim leyfum og skilyrðum sem gilda um verkefnið. Nú er jafnframt verið að fara yfir framkvæmdina, mótvægisaðgerðir og viðbrögð í samstarfi við eftirlitsaðila og sérfræðinga til að meta hvað má betur fara.
Hafa framkvæmdirnar verið stöðvaðar alveg?
Boranir eru stöðvaðar tímabundið á meðan unnið er að frekari úrbótum, rannsóknum og mati á næstu skrefum. Áður en framkvæmdir hefjast aftur þarf að liggja betur fyrir hvernig hægt er að draga frekar úr áhrifum á umhverfið.
Er verið að rannsaka áhrifin óháð Veitum?
Já. Unnið er með óháðum sérfræðingum og eftirlitsaðilum við sýnatökur, vöktun og mat á áhrifum framkvæmdanna á vatnsgæði og lífríki.
Verður haldinn íbúafundur?
Veitur vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila þar sem farið verður yfir stöðu mála, þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í og næstu skref.
Verður fylgst með ánni áfram?
Já. Vöktun á ánni heldur áfram þar til sérfræðingar meta að ekki sé lengur þörf á vöktun.
Hvað verður gert þegar framkvæmdum lýkur?
Lögð er áhersla á að ganga vel frá framkvæmdasvæðinu að borunum loknum. Jafnframt verður farið yfir hvaða frekari aðgerðir eða úrbætur kunna að vera nauðsynlegar í kjölfar rannsókna og mats sérfræðinga.
Hvað er bentonite?
Bentonite er náttúrulegt efni, leir sem gjarnan er notaður við boranir til að einfalda borun. Það er mikið notað í fyrstu áföngum borunar þegar borað er í gengum efsta lag bergsins. Bentonite hentar illa þegar neðar kemur í holur því hann getur stíflað heitavatnsæðarnar líkt og borsvarfið getur gert. Þess vegna er notað vatn og loft við borun og þannig hefur það verið í Skammadal frá því um miðjan maí.
Í byrjun maí fór fyrir mistök takmarkað magn af bentonite út í ána sem var ekki samkvæmt verklagi. Um leið og það varð ljóst var það sett á hringrás og endurnýtt við borun.
Tengdar fréttir
Borframkvæmdir í Skammadal og áhrif á Varmá